Stjórn Blöndu. Ljósm. FB/Bj.Blanda
Stjórn Blöndu. Ljósm. FB/Bj.Blanda
Fréttir | 27. apríl 2017 - kl. 15:13
Óbreytt stjórn Björgunarfélagsins Blöndu

Aðalfundur Björgunarfélagsins Blöndu fór fram síðastliðinn þriðjudag og mættu 15 félagar á fundinn. Hefðbundin aðalfundastörf voru á dagskrá og ræddu fundarmenn málin fram og til baka, að því er fram kemur á Facebook síðu félagsins. Allir stjórnarmenn gáfu kost á sér til  Ã¡framhaldandi stjórnarsetu og engin mótframboð bárust. Stjórnin verður því óbreytt næsta starfsárið.

Formaður: Hjálmar Björn Guðmundsson
Varaformaður: Ólafur Sigfús Benediktsson
Gjaldkeri: Agnar Logi Eiríksson
Ritari: Þorgils Magnússon
Meðstjórnandi: Auðunn Sigurðsson
Varamenn: Elmar Sveins og Arnar Freyr Ómarsson

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga