Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 25. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 17:04 0 0°C
Laxárdalsh. 17:04 0 0°C
Vatnsskarð 17:04 0 0°C
Þverárfjall 17:04 0 0°C
Kjalarnes 17:04 0 0°C
Hafnarfjall 17:04 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Pistlar | 09. maí 2017 - kl. 13:39
Dæmalaus landsbyggðarskattur
Eftir Karl Jónsson

Það er nánast pínlegt að hlýða á fjármálaráðherrann okkar réttlæta þá ákvörðun að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustuna. Frá honum hafa heyrst fullyrðingar um að greinin hafi fengið „skattaívilnanir,“ eigi að sitja við sama borð og aðrar atvinnugreinar, og sé búin að slíta barnsskónum, sem er bara fyndin framsetning. Þetta virðast vera lykilhugtökin í rökstuðningi ráðherrans ásamt því að hægja eigi á vexti atvinnugreinarinnar. Ég ætla ekki að eyða tíma í að hrekja akkúrat þessar fullyrðingar, það hafa margir málsmetandi menn gert, innan sem utan ferðaþjónustunnar. En segi það þó að umræðan er full af frösum og klisjum sem hafa ekkert innihald ef betur er að gáð.

Það eru hins vegar tvö atriði sem mér er beinlínis skylt að fjalla um. Annars vegar sú sorglega staðreynd að hérna er verið að leggja á dæmalausan landsbyggðarskatt og hins vegar boðaðar mótvægisaðgerðir fyrir ferðaþjónustuna úti á landi sem verið er að „skoða.“ Þegar stjórnvöld „skoða“ eitthvað, verður maður ósjálfrátt skíthræddur við að ekkert gerist.

Undanfarin ár hefur ferðaþjónustan úti á landsbyggðunum verið að byggja sig upp og séð og fundið áður óþekkt tækifæri til að lífga upp á byggðir sínar og skapa lífsviðurværi fyrir íbúana. Upp hafa sprottið allskyns ferðaþjónustufyrirtæki sem veita heimafólki atvinnu, byggja á sérstöðu svæðanna og draga fram í dagsljósið frumkvöðla og dugnaðarforka sem bera hag sinna héraða fyrir brjósti. Við höfum leynt og ljóst verið að bíða eftir því að augu ferðamanna og ferðaskipuleggjenda beinist að öðrum svæðum en Suðvesturhorninu og Suðurlandi og búið í haginn til að taka á móti fleiri gestum út á land. Ferðaþjónustan hefur lagt í kostnað við uppbyggingu á afþreyingu, gistingu og veitingum sem byggir á sérstöðunni sem svo mikilvæg er til að gera skorið sig úr. Allt virðist í blóma og tækifærin blasa við, en þá kýs ríkisstjórnin að reka fleyg í þessa uppbyggingu og draga mátt úr fólki við að byggja upp lífsviðurværi og þróa þjónustu við ferðamenn. Ég leyfi mér að fullyrða að þessi uppbygging ferðaþjónustunnar úti á landi undanfarin misseri er stærsta og besta byggðaaðgerðin sem farið hefur í gang í áratugi. Og það sem meira er, án aðkomu stjórnvalda sem frekar virðast búa til vandamál í tengslum við ferðaþjónustuna þessa dagana en leysa þau.

Nú skal þessi uppbygging stöðvuð með illa ígrunduðum hækkunum á virðisaukaskatti sem ekki bara skerða möguleika okkar úti á landi til frekari uppbyggingar og starfafjölgunar í ferðaþjónustu heldur auka líka vandamál ferðaþjónustunnar syðra. Það verður of dýrt fyrir ferðamenn að ferðast út á land. Þeir munu því halda til á Suðvesturhorninu og Suðurlandi sem aldrei fyrr og skapa enn meiri massavandamál þar en við höfum áður séð. Þið munið þetta með að „dreifa ferðamönnum um landið“ rétt eins og áburði er dreift á tún nú í vorblíðunni. Það verður í besta falli lélegur brandari með hækkun virðisaukaskattsins.

Að mínu mati er aðstöðumunur á því hvernig landsbyggðarfyrirtæki geta tekið á hækkuninni og hvernig ferðaþjónustufyrirtæki syðra geta gert það. Þar verður massinn áfram – væntanlega með öllum sínum vandamálum, þar verður hugsanlega hægt að færa þetta að einhverju leyti út í verðlagið. Við úti á landi eigum þess hins vegar ekki kost og því þurfum við að draga saman seglin inn á við í okkar rekstri sem birst getur á margvíslegan máta, samfélaginu sem við búum í til tjóns.

Allir alvöru stjórnmálamenn hafa framtíðarsýn. Þeir koma með lausnir samhliða greiningum á vandamálum. En íslenskum stjórnmálamönnum er tamt að skjóta fyrst og spyrja svo. Demba fram illa rökstuddum aðgerðum líkt og þessari virðisaukaskattshækkun, án samráðs, m.a. í gegn um sína eigin Stjórnstöð ferðamála, án trúverðugra greininga á afleiðingum og algjörlega með skammtímahagsmuni í huga. Okkur er því ætlað að pissa í skóinn okkar eina ferðina enn.

Það sýndi sig fyrir allmörgum árum þegar veiðar á þorski voru verulega dregnar saman á milli ára að það var ýmislegt hægt að gera til mótvægis þeim aflabresti í sjávarbyggðum landsins. Núna heyrist ekkert um slíkar aðgerðir, ekkert tilbúið, það á bara að „skoða“ þrátt fyrir að ferðaþjónustan sé nú orðin mikilvægasta atvinnugreinin á Íslandi og hafi skilað margfalt meiri árangri í byggðamálum en nokkur aðgerð stjórnvalda. Að ekki sé talað um gjaldeyrissköpun greinarinnar og þeim 70 milljörðum sem hún skilar í skatttekjur til ríkisins árlega um þessar mundir.

Ráðherrann hefur talað um að einn möguleikinn sé að fara í sérstakt markaðsátak fyrir landsbyggðina. Í nokkur ár hefur verið í gangi markaðsátak sem heitir Ísland allt árið. Það hefur það að markmiði að kynna landið sem heilsársáfangastað. M.a. vegna þess átaks er vetrarferðaþjónustan aðeins farin að skjóta rótum á nokkrum stöðum úti á landi og við fundum vel fyrir því í vetur. En hækki virðisaukaskatturinn tökum við mörg skref til baka og sú uppbygging sem hefur átt sér stað yfir vetrartímann verður að engu gerð. Með öðrum orðum að þá er raunveruleg hætta á að öll sú markaðssetning sem farið hefur verið í eyðileggist og við förum aftur til þeirra tíma þegar ferðaþjónustufyrirtæki voru meira og minna lokuð yfir vetrartímann. Þrátt fyrir að hafa hér öll tækifæri í hendi til að byggja upp sterka heilsársatvinnugrein.

Ég hef oft sagt það í góðra vina hópi að við Íslendingar kunnum ekki að stýra okkar eigin efnahagsmálum. Þessi ráðstöfun sem boðuð hefur verið er enn ein sönnun þess að okkur er ekki við bjargandi þegar kemur að efnahagsmálum og ákvarðanatöku þeim tengdum. 

Erum við virkilega ennþá stödd þarna?

Karl Jónsson

Höfundur er meðeigandi og framkvæmdastjóri Lamb Inn á Öngulsstöðum og formaður Ferðamálafélags Eyjafjarðarsveitar.

Höf. rzg
Tilkynningar | 25. apríl 2024 - kl. 09:33
Húnahornið óskar Húnvetningum sem og landsmönnum öllum gleðilegs sumars. Takk fyrir veturinn.
Glaðheimar
Tilkynningar | 25. apríl 2024 - kl. 09:30
Frá sóknarnefnd
Aðalsafnaðarfundur Þingeyrasóknar verður haldinn í Klausturstofu mánudaginn 29. apríl nk. klukkan 20:00. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður m.a. rætt um viðhald og lýsingu í kirkjugarði og sumaropnun kirkjunnar. Það er ósk okkar að sem flestir mæti og taki þátt í umræðum um kirkjuna okkar og annað það sem betur má fara í kirkjulegu starfi.
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 00:30
Hljómsveitin Löður ásamt listamanninum Balduuuuur.
Ungmennafélagið Hvöt og Hljómsveitin Löður ásamt listamanninnum Balduuuuur hafa gefið út stuðningsmannalagið Áfram Hvöt. Lag og texti eru eftir Einar Örn Jónsson sem vart þarf að kynna fyrir íbúum Húnabyggðar. Þá syngur Baldur Einarsson, sonur Einars Arnar, lagið. Útsetning lagsins var í höndum þeirra beggja.
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Fréttir | 24. apríl 2024 - kl. 11:19
Góð þátttaka var á vinnustofu um gerð loftslagsstefnu sveitarfélaganna í Húnavatnssýslum sem haldin var á Hvammstanga nýverið. Það voru Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem stóðu fyrir vinnustofunni í samstarfi við KPMG. Á vef SSNV kemur fram að áhugaverðar umræður hefðu skapast og ljóst sé að það er bjart yfir fólki þegar vorar, enda sé bjart framundan fyrir svæðið.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 13:50
Nöfn Pálínu Fanneyjar Skúladóttur og Harðar Gunnarsson voru dregin upp úr potti í tengslum við kosningu á fimm tillögum af slagorði fyrir Húnaþing vestra. Þátttakendur í kosningunni gátu skráð netfang sitt og tekið þátt í happdrættinu og í boði var 10 þúsund króna gjafabréf á veitingastað í sveitarfélaginu. Pálína og Hörður völdu gjafabréf á Northwest í Víðigerði. Slagorðið sem varð hlutskarpast er Lifandi samfélag og hefur sveitarstjórn samþykkt tillöguna.
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:49
Í gærkvöldi sóttu vettvangsliðar á Skagaströnd fræðslu um ofbeldi í nánum samböndum, einkenni þess og mögulegar birtingarmyndir. Fræðslan var á vegum Lögreglunnar á Norðurlandi vestra en unnin í nánu samstarfi við félagsþjónustu svæðisins. Fleiri einingar viðbragðsaðila í umdæminu munu sitja sams konar fræðslu á næstu vikum, að því er segir á facebooksíðu lögreglunnar. Fræðslan í kvöld fór fram í Bjarmanesi þar sem eitt sinn var lögreglustöð.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:42
Árlegir vortónleikar Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga eru framundan enda vorið og sumarið á leiðinni í Húnavatnssýslurnar. Fyrstu tónleikarnir fara fram í Blönduóskirkju þriðjudaginn 30. apríl klukkan 20 en þar koma fram söngnemendur úr Húnabyggð. Þriðjudaginn 7. maí klukkan 17 verða tónleikar í Hólaneskirkju og þar koma fram hljóðfæra- og söngnemendur úr Skagabyggð og frá Skagaströnd.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:30
Aðalfundur Stéttarfélagsins Samstöðu 2024 verður haldin mánudaginn 29.apríl klukkan 18:00 í sal Samstöðu, Þverbraut 1 á Blönduósi. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:26
Frá stjórn
Aðalfundur Styrktarsjóðs Húnvetninga verður haldinn að Þverbraut 1 (Samstöðu) klukkan 17:00 fimmtudaginn 2. maí næstkomandi. Venjuleg aðarfundarstörf.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 21:23
Frá Kvenfélagi Svínavatnshrepps
Kvenfélag Svínavatnshrepps hélt upp á 150 ára afmæli sitt 20. apríl sl. Var öllum kvenfélagskonum í Austur Húnavatnssýslu boðið í kaffi í Dalsmynni. Þar var mikil kökuveisla sem einkenndist af því að hafa kaffibrauð sem hugsanlega hefði getað verið á borðum er kvenfélagið var stofnað. Fyrir tíu árum þegar kvenfélagið varð 140 ára héldu konur í félaginu hóf og einnig handverkssýningu í Dalsmynni.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 18:37
Hátíðarhöld í tilefni sumardagsins fyrsta á Hvammstanga í ár verða enn fjölbreyttari en áður. Hátíðin er haldin af Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra í samstarfi við Hestamannafélagið Þyt og hefst með ókeypis sirkussýningu í Þytsheimum klukkan 12:00, fimmtudaginn 25 apríl. Síðan verður haldið upp á sumardaginn fyrsta á hefðbundinn hátt með skrúðgöngu frá Reiðhöllinni Þytsheimum klukkan 14:00.
Bréf Margrétar á Hóli
Bréf Margrétar á Hóli
Pistlar | 20. apríl 2024 - kl. 16:59
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
Stjórnarherrar landanna höfðu í aldanna rás lengstum ekki mikil afskipti af þegnum sínum, létu sér nægja að hirða af fólki hluta af þeim arði sem það framleiddi og krafði svo með nokkuð jöfnu millibili hluta af karlpeningnum til þjónustu í herjum sínum til vígaferla og ránsferða. Auk þess höfðu stjórnvöld mikinn áhuga á að segja fólki á hvað það skyldi trúa. Heilbrigðismál, skólamál og félagsþjónusta komu lítið inn á borð stjórnarherranna en var á vegum einstaklinga og ættmenna, kirkjunnar og, a.m.k. á Íslandi, hreppa.
Bóka- og skjalasafnið á Blönduósi
Bóka- og skjalasafnið á Blönduósi
Pistlar | 20. apríl 2024 - kl. 11:58
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Á miðvikudegi þann 8. maí, boðum við aðalfund Sögufélagsins Húnvetnings, kl. 15, þ.e. á nóni í Bóka- og skjalasafninu Blönduósi. Þar munu þau Svala skjalavörður Runólfsdóttir og Benedikt Blöndal segja frá og sýna okkur árangur starfs þeirra hjóna við að safna upplýsingum um minnismerki í Austur-Húnavatnssýslu síðustu misserin. Einnig mun Hjalti Pálsson sagnfræðingur koma til okkar á fundinn og segja okkur frá upphaflegum tillögum og umræðu sem leiddu til þess stórvirkis sem Byggðasaga Skagfirðinga varð í höndum hans.
Mynd: vedur.is
Mynd: vedur.is
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 21:12
Gular veðurviðvaranir taka gildi á morgun allt frá Breiðafirði, um Vestfirði, allt Norðurland og austur á firði, vegna talsverðrar rigningar og asahláku á morgun og fram á aðfaranótt sunnudags. Á vef Veðurstofunnar segir að vegna ört hækkandi hitastigs megi búast við miklum leysingum, auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum. Mikilvægt sé að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón vegna rigningar og leysingavatns.
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið