Tilkynningar | 19. maí 2017 - kl. 09:10
Vorsýning Blönduskóla á uppstigningardag
Tilkynning frá nemendum og starfsfólki Blönduskóla

Sýning á verkum nemenda, sem þeir hafa unnið í vetur, fer fram í Nýja skóla fimmtudaginn 25. maí, uppstigningardag, frá kl. 13:00 - 15:00. Flest verkin hafa verið unnin í smiðjum og valfögum í myndlist og textílmennt en einnig verða til sýnis einstaka verkefni sem nemendur hafa unnið í örðum fögum.

Upplagt fyrir fjölskylduna að fá sér göngutúr upp úr hádegi og líta við í skólanum.
Allir hjartanlega velkomnir.

 

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga