Þórdís Rúnarsdóttir
Þórdís Rúnarsdóttir
Fréttir | 16. júní 2017 - kl. 09:16
Ráðning ferðamálafulltrúa
Frá Ferðamálafélagi A-Hún.

Þórdís Rúnarsdóttir hefur verið ráðin í stöðu ferðamálafulltrúa Austur-Húnavatnssýslu en alls bárust sex umsóknir um stöðuna. Þórdís er menntuð sem ferðamálafræðingur frá Háskólanum á Hólum og er auk þess með diplómu í viðburðastjórnun og landvarðarréttindi. Þórdís kemur frá Reykjanesbæ en á meðan á námi stóð var hún búsett á Hólum í Hjaltadal. Hún mun setjast að á Blönduósi ásamt sonum sínum tveimur sem eru á grunnskólaaldri. Þórdís hefur unnið margvísleg störf tengd þjónustu við ferðamenn, verkefnastjórnun og viðburðastjórnun.

Ráðning í stöðu ferðamálafulltrúa er samstarfsverkefni Ferðamálafélags A-Hún, Þekkingarsetursins á Blönduósi, Blönduósbæjar, Húnavatnshrepps og Skagabyggðar.

Upplýsingamiðstöðin verður staðsett í bókasafninu á Blönduósi og opin frá 9-17 alla virka daga.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga