Tilkynningar | 27. júní 2017 - kl. 07:16
Lausar stöður hjá Barnabæ
Frá leikskólanum Barnabæ

Leikskólinn Barnabær, Blönduósi auglýsir lausar stöður við kennslu barna á aldrinum  8 mánaða til 6 ára.

Barnabær er fjögurra deilda leikskóli með aldursskiptum deildum og er elsti hópurinn staðsettur í öðru húsnæði. Mjög gott samstarf er við grunnskólann og fer elsti hópurinn í kennslustundir með fyrsta bekk einu sinni í viku yfir veturinn.Unnið er samkvæmt Aðalnámskrá leikskóla frá 2011.

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af leikskólastarfi æskileg.

  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.

  • Góð samskiptafærni.

  • Góðir skipulagshæfileikar.

Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um.

Umsóknarfrestur er til og með 28. júní 2017.

Áhugasamir hafi samband við Jóhönnu G. Jónasdóttir, leikskólastjóra í síma 452 4530 eða á netfangið johanna@blonduos.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga