Sigurdís Sandra Tryggvadóttir
Fréttir | 25. júlí 2017 - kl. 11:22
Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi heldur Stofutónleika í safninu, sunnudaginn 30. júlí og hefjast þeir klukkan 15:00. Jazztríó Sigurdísar Söndru Tryggvadóttur leikur tónsmíðar og útsetningar eftir hana í bland við annað efni. Lög samin við ljóð eftir Jónas Tryggvason frá Finnstungu verða meðal annars á efnisskránni.
Sigurdís stundaði nám við Tónlistarskóla Austur-Húnavatnssýslu. Hún útskrifaðist af listnámsbraut frá Menntaskólanum á Akureyri og með framhaldspróf í klassískum píanóleik frá Tónlistarskólanum á Akureyri. Núna í vor útskrifaðist hún úr Tónlistarskóla FÍH með burtfararpróf í rytmískum píanóleik og kennarapróf. Í haust hefur Sigurdís háskólanám í jazzpíanóleik við Tónlistarskólann í Odense í Danmörku.
Með Sigurdísi spila Ævar Örn Sigurðsson á kontrabassa og Skúli Gíslason á trommur báðir útskrifaðir frá Tónlistarskóla FÍH og virkir þátttakendur í tónlistarsenunni á Íslandi. Aðgangseyrir safnsins gildir og eftir tónleikana verðum gestum boðið upp á kaffi og tilheyrandi.