Fréttir | 26. júlí 2017 - kl. 10:28
Þríþraut USVH

Ungmennasamband Vestur-Húnavatnssýslu stendur fyrir þríþrautarkeppni föstudaginn 27. júlí. Boðið verður upp á keppni í flokki einstaklinga, liða og krakka liða (14 ára og yngri). Liðin mega vera blönduð. Einn syndir, einn hjólar og einn hleypur. Þátttakendur eiga að vera ættir við Íþróttamiðstöðina á Hvammstanga klukkan 17:10 en þríþrautin hefst 17:30.

Skráning og nánari upplýsingar er á netfangið sveinbjorg.petursd@gmail.com. Frestur til skráningar er til og með 27. júlí nk. Skráningargjöld. Einstaklingar kr. 1.500, lið kr. 3.000, krakkar kr. 1.000.

Einstaklingskeppni: Sund 400m. Hjól 3 merkurhringir. Hlaup, 1 merkurhringur.

Liða keppni: Sund 400m. Hjól 3 merkurhringir. Hlaup, 1 merkurhringur.

Krakka liðakeppni: Sund 200m. Hjól 1 merkurhringur. Hlaup 1km.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga