Pistlar | 04. ágúst 2017 - kl. 09:12
Eins og ég vona að flestir Blönduósingar hafi tekið eftir hefur verið til fyrirmyndar umhirða opinna svæða hér í bænum í sumar þar með talið sláttur og umhirða gróðurreita.
Einnig hafa flest allir íbúar verið duglegir að hirða lóðir sínar. Heildar yfirbragð bæjarins er mjög fallegt og er hann til fyrirmyndar í umhverfislegu tilliti.
Það ber að þakka það sem vel er gert ég vil þakka vinnuskólanum, bæði stjórnendum hans og ungmennunum sem hafa unnið hjá vinnuskólanum í sumar fyrir sérlega góða vinnu einnig þeim sem séð hafa um slátt á opnum svæðum og íbúum sem lagt hafa sig fram í fegrunar og umhverfismálum.
Blönduós er fallegur bær og ber að hafa hann eins vel útlítandi og hægt er fallegt umhverfi kalla á jákvætt viðhorf.
Áfram Blönduós!
Takk fyrir.
Valgarður