Ljósm: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Ljósm: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Fréttir | 18. ágúst 2017 - kl. 20:53
152 ökumenn kærðir vegna hraðaksturs

Mikið hefur verið að gera hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra síðastliðna viku og þar hafa umferðarmál komið mikið við sögu, að því er fram kemur á Facebook síðu lögreglunnar. Alls voru 152 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur og var sá hraðasti mældur á 162 kílómetra hraða á klukkustund milli Sauðárkróks og Varmahlíðar þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund.

Í gær var sérstakur umferðareftirlitsdagur hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra. Fjórar lögreglubifreiðar voru við hraðaeftirlit samtímis á þjóðvegum umdæmisins og voru 45 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur. Sá hraðasti mældist á 138 kílómetra hraða á klukkustund á þjóðvegi 1, í Blönduhlíð, þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund.

Framundan hjá lögreglunni á Norðurlandi er áframhaldandi umferðareftirlit og biður lögreglan ökumenn um að virða hámarkshraða á vegum og sýna tillitsemi í umferðinni.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga