Tilkynningar | 21. ágúst 2017 - kl. 13:12
Dósasöfnun knattspyrnudeildar Hvatar í dag
Tilkynning frá stjórn

Knattspyrnudeild Hvatar stendur fyrir dósasöfnun í dag en krakkarnir munu mæta í Íþróttamiðstöðina kl. 17:00 og rölta þaðan í hús og safna. Allir iðkendur í 3. – 7. flokk eru boðaðir að þessu sinni. Börn í 7. flokk þurfa að vera í fylgd með fullorðnum.

Talningin fer svo fram í vallarhúsinu frá kl. 18:00 og eru allir foreldrar hvattir til að taka þá í því partýi.

Þeir sem eiga bíl/kerru og eru tilbúnir að hjálpa við að keyra um bæinn og safna pokunum hjá krökkunum láti Hámund vita.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga