Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 18. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 21:29 0 0°C
Laxárdalsh. 21:29 0 0°C
Vatnsskarð 21:29 0 0°C
Þverárfjall 21:29 0 0°C
Kjalarnes 21:29 0 0°C
Hafnarfjall 21:29 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Blönduskóli
Blönduskóli
Tilkynningar | 21. ágúst 2017 - kl. 13:15
Blönduskóli verður settur á morgun kl. 11:00
"Velkomnir til samstarfs foreldrar Blönduskóla"

Þá er nýtt skólaár að hefjast og gaman að hitta alla eftir viðburðaríkt sumarfrí. Í upphafi skóla þarf alltaf að fara vel yfir ýmis atriði varðandi skólastarfið.

Eftirtaldar upplýsingar eru á vef skólans, http://blonduskoli.is/til skoðunar og/eða útprentunar: sundhópar og smiðjuhópar eru undir krækjunni „Nemendur“ og skráning í mötuneyti er undir krækjunni „Þjónusta“. Ef einhver á eftir að skila inn pöntun þá vinsamlega gera það í dag (sendist á elfa@blonduskoli.is). Neyðarkort eru á vef skólans undir Þjónusta – Eyðublöð. Vinsamlega fyllið út og komið til skila til umsjónarkennara.

Stundatöflur eru inn á Mentor. 

Vinsamlega lesið allt vandlega yfir:

Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvum og/eða tölvupósti verða að nálgast þessar upplýsingar hjá umsjónarkennara. Mjög mikilvægt er að rétt og virk netföng séu skráð inn á Mentor. Foreldrar eiga að geta leiðrétt heimilisföng, símanúmer og netföng sjálfir en ef ekki þá vinsamlega hafið samband við umsjónarkennara. Þeir sem ekki eru komnir með aðgang að Mentor verða að setja sig í samband við umsjónarkennara.

Nesti

Hollt og gott nesti stuðlar að betri vinnu og námi. Mælst er til þess að nemendur komi með hollt nesti eins og grænmeti og ávexti í margnota umbúðum. Hægt er að kaupa kalda mjólk í skólanum (sjá upplýsingar undir Þjónusta – mjólkursala). Við mælum með mjólkinni eða nemendur komi með vatn í brúsa; hollt, gott og ódýrt. Blönduskóli hefur sett sér það markmið að efla vitund nemenda og starfsmanna um umhverfismál. Í því felst m.a. að ekki er hægt að henda einnota umbúðum í skólanum og nemendur koma heim með nestisafganga.

Forföll nemenda

Ef nemendur eru veikir þá eru þeir heima. Frímínútur eru ekki langar, einungis 10 og 20 mínútur á dag. Því gerum við ráð fyrir að allir nemendur (unglingar undanþegnir) fari út og að sjálfsögðu verða þeir að vera búnir samkvæmt veðri. Foreldrar eru beðnir um að láta umsjónarkennara eða skólastjóra strax vita um veikindi og önnur forföll nemenda. Foreldrar og forráðamenn skulu sjálfir tilkynna forföll. Umsjónarkennarar geta veitt nemendum sínum leyfi í tvo daga. Lengri leyfi frá skóla veita skólastjóri eða aðstoðarskólastjóri. Foreldrar/forráðamenn sæki um leyfin fyrir börn sín með góðum fyrirvara. Öll röskun á námi nemenda sem hlýst af umbeðnu leyfi er á ábyrgð foreldra eða forráðamanna.

Opnunartími

Aðalbygging (Nýi skóli) er opnuð kl. 7:30 á morgnana. Íþróttamiðstöð (skólainngangur) og Gamli skóli kl. 7:45. Gamla skóla er lokað kl. 16:00 en Nýja skóla kl. 16:30 (fyrr á föstudögum).

Upplýsingamiðlun

Foreldrar eru minntir á upplýsingavefinn Mentor.is en þar eru helstu upplýsingar sem varða skólann og nemendur s.s. heimanám, stundaskrár o.fl. Nýjum foreldrum sendum við lykilorð í tölvupósti  en foreldrar geta snúið sér til umsjónarkennara ef lykilorð týnist. Einnig er heimasíðan okkar http://blonduskoli.is/ full af upplýsingum.

Að gefnu tilefni

Okkur langar að benda ykkur á að góð regla er að kemba hár barnanna fyrir skólabyrjun og svo tvisvar til þrisvar yfir skólaárið.  Hvort sem okkur líkar betur eða verr þá kemur lús æ oftar upp í skólum landsins og því nauðsynlegt að vera vakandi til að hefta útbreiðslu eins fljótt og hægt er.

Tilkynna skal lúsasmit til heilsugæslustöðvar, skólahjúkrunarfræðings eða skólastjóra.

Endilega hafið samband ef einhverjar spurningar vakna.

Kveðja,

Þórhalla Guðbjartsdóttir skólastjóri og Þuríður Þorláksdóttir aðstoðarskólastjóri.

 

Höf. ass
Mynd. skagastrond.is
Mynd. skagastrond.is
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 20:23
Árleg kökukeppni Undirheima, sem er félagsmiðstöð fyrir unglinga í Höfðaskóla, var haldin í gærkvöldi. Keppendur voru tólf talsins og voru tveir til þrír saman í hóp. Skreyta þurfti kökurnar á staðnum og höfðu keppendur 60 mínútur til þess að ljúka verkinu. Að því loknu valdi þriggja manna dómnefnd þrjú efstu sætin sem frumlegustu kökuna, besta bragðið og fallegustu kökuna. Að hennar sögn var valið ekki auðvelt. Sagt er frá þessu á vef Skagastrandar.
Glaðheimar
Lið Grunnskóla Húnaþings vestra. Mynd: FB/Grunnskóli Húnaþings vestra
Lið Grunnskóla Húnaþings vestra. Mynd: FB/Grunnskóli Húnaþings vestra
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 06:05
Lið Grunnskóla Húnaþings vestra er komið í úrslit Skólahreysti en keppt var í Laugardagshöll og sýnt beint á RÚV. Liðið stóð sig frábærlega og sigraði riðilinn sinn. Úrslitakeppnin fer fram 25. maí næstkomandi. Lið Grunnskóla Húnaþings vestra skipa þau Friðrik Hrafn Hannesson, Saga Ísey Þorsteinsdóttir, Victor Þór Sigurbjörnsson, Nóa Sophia Ásgeirsdóttir, Indriði Rökkvi Ragnarsson og Victoría Elma Vignisdóttir.
Frá æfingunni í Krúttinu á Blönduósi. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Frá æfingunni í Krúttinu á Blönduósi. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 05:59
Viðbragðsaðilar á Norðurlandi vestra stefna á að halda hópslysaæfingu 11. maí næstkomandi. Hluti hópsins hittist á Blönduósi í fyrradag og æfðu viðbragð við flugslysi og rútuslysi, þar sem settar voru upp tvær borðæfingar. Æfingarnar eru undirbúningur fyrir stóru æfinguna í maí og er samvinna lykilinn að góðri útkomu, eins og segir á facebooksíðu Lögreglunnar á Norðurlandi vestra. „Samhæft viðbragð skilar betri þjónustu til borgaranna.“
Þórdís Kolbrún og Sigríður á aðalfundinum. Mynd: xd.is
Þórdís Kolbrún og Sigríður á aðalfundinum. Mynd: xd.is
Fréttir | 17. apríl 2024 - kl. 06:10
Sigríður Ỏlafsdóttir úr Húnaþingi vestra var endurkjörin formaður kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi en ráðið hélt aðalfund sinn á Laugum í Sælingsdal um síðustu helgi. Á fundinum var samþykkt stjórnmálaályktun þar sem meðal annars er komið inn á að atvinnufrelsi og eignarréttur sé órjúfanlegur hluti frjáls samfélags og forsenda þess að hægt sé að tryggja jöfn tækifæri í landinu.
Hólmfríður, rektor við Háskólann á Hólum tekur við viðurkenningunni frá Katrínu, framkvæmdastjóra SSNV.
Hólmfríður, rektor við Háskólann á Hólum tekur við viðurkenningunni frá Katrínu, framkvæmdastjóra SSNV.
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 14:48
Tilkynning frá Háskólanum á Hólum
Háskólinn á Hólum hlýtur Byggðagleraugu Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra fyrir framsækið og metnaðarfullt starf. Námið við háskólann er sértækt að því leyti að það byggir á traustum grunni fyrir mikilvægar framtíðar atvinnugreinar í samfélaginu þar á meðal íslenska hestinn, ferðaþjónustu í dreifbýli og fiskeldi, en skólinn hefur dregið til sín nemendur víðsvegar að úr heiminum. Í Háskólanum á Hólum er öflugt háskólastarf sem er í stöðugum vexti og nýsköpun.
Frá Skagaströnd
Frá Skagaströnd
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 05:32
Sveitarfélagið Skagaströnd heldur íbúafund í Fellsborg miðvikudaginn 17. apríl klukkan 17:00. Á dagskrá eru fjölmörg mál eins og staðan á hafnarframkvæmdum, breyting á námsstofu, sorpmál, vinnuskóli, gjaldskrár og kjarasamningar.
Sr. Sigríður Gunnarsdóttir. Mynd: kirkjan.is
Sr. Sigríður Gunnarsdóttir. Mynd: kirkjan.is
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 05:27
Sr. Sigríður Gunnarsdóttir sóknarprestur í Skagafjarðarprestakalli hefur verið skipuð prófastur í Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi. Hún tekur við af sr. Döllu Þórðardóttur á Miklabæ, sem lét af störfum 1. desember síðastliðinn. Frá þeim tíma hefur sr. Gísli Gunnarsson vígslubiskup á Hólum gegnt prófstsstörfum.
Frá Hvammstanga
Frá Hvammstanga
Tilkynningar | 16. apríl 2024 - kl. 05:17
Frá Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra
Aðalfundur Félags eldri borgara í Húnaþingi vestra verður haldinn miðvikudaginn 17. apríl 2024 klukkan 14:00 í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, skýrsla og tillögur ferðanefndar og margt fleira. Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri verður gestur fundarins. Kaffiveitingar að hætti kaffinefndar. Nýir félagar ávallt velkomnir.
Tilkynningar | 16. apríl 2024 - kl. 05:13
Frá stjórn
Aðalfundur Hollvinasamtaka heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi verður haldinn í fundarsal HSB föstudaginn 26. apríl næstkomandi klukkan 16.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Fréttir | 15. apríl 2024 - kl. 09:43
Knattspyrnulið Kormáks Hvatar mætti í Fífuna í Kópavogi í gær og spilaði gegn Augnabliki í 2. umferð Mjólkurbikarsins. Leikurinn fór fjörlega af stað og vel fyrir gestina því Papa Diounkou Tecagne skoraði fyrsta mark leiksins á 9. mínútu. Heimamenn voru ekki lengi að svara með marki á 13. mínútu og öðru marki á 31. mínútu. Staðan í hálfleik 2-1 fyrir Augnablik. Í seinni hálfleik voru skoruð fjögur mörk, þrjú af heimamönnum og einn af gestunum, en það gerði Kristinn Bjarni Andrason. Leikurinn endaði því 5-2 fyrir Augnablik.
Kórinn á Blönduósi 1939
Kórinn á Blönduósi 1939
Pistlar | 14. apríl 2024 - kl. 17:16
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Úr dagbók Jónasar Tryggvasonar í Finnstungu fyrir 79 árum: Sun. 8. apríl 1945: Bar lítið til tíðinda. Skagfirska skáldkonan Ỏlína Jónasdóttir er sextug í dag. Vísur hennar eru löngu landfleygar og á hvers manns vörum, þess er yndi hefur af snilld fagurrar stöku. Ég hef ekki, svo ég muni til, heyrt vísu eftir Ỏlínu, sem ekki hafi verið vel gerð, en meiri eða minni snilldarbragur er á þeim flestum ...
Pistlar | 13. apríl 2024 - kl. 16:15
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
Þegar við hugsum um leiðir til að bæta heilsu samfélagsins þá hugsum við ekki alltaf um aðgengi að listum. En þegar við hugsum um það þá eru listir ein tegund tilfinningatjáningar. Hvort sem það er hamingja eða örvænting þá er það nauðsynlegt að hafa útrás til að nálgast tilfinningar á heilbrigðan og öruggan hátt. Samfélög sem styðja við listir, koma saman til að skapa list saman, hafa sýnt sig að vera tengdari
Frá ársþinginu. Mynd: ssnv.is
Frá ársþinginu. Mynd: ssnv.is
Fréttir | 13. apríl 2024 - kl. 10:27
Þrítugasta og annað ársþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra var haldið á fimmtudaginn í Félagsheimilinu á Blönduósi og heppnaðist vel, að því er segir á vef samtakanna. Góð mæting var á þingið en á meðal gesta voru kjörnir fulltrúar á Norðurlandi vestra og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fjölbreytt og áhugaverð erindi voru flutt og ný samgöngu- og innviðaáætlun kynnt. Fram kemur á vef SSNV að frekari upplýsinga er að vænta um það sem fram fór á þinginu.
Frá undirskrift samningsins. Mynd: FB/Aðdáendasíða Kormáks
Frá undirskrift samningsins. Mynd: FB/Aðdáendasíða Kormáks
Fréttir | 13. apríl 2024 - kl. 10:16
Stjórn meistaraflokks Kormáks Hvatar og veitingastaðurinn Sjávarborg á Hvammstanga hafa skrifað undir samning um að Hvammstangavöllur í Kirkjuhvammi beri nafn Sjávarborgar í sumar. Þetta er fyrsta sinn sem knattspyrnuvöllurinn ber nafn styrktaraðila, að því er segir á Aðdáendasíðu knattspyrnuliðsins Kormáks-Hvatar á Facebook. Í sumar fara fjórir meistaraflokksleikir fram á Sjávarborgarvellinum, auk leikja í yngri flokkum.
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið