Fréttir | 21. ágúst 2017 - kl. 13:33
Kynningarfundir vegna Vörusmiðju BioPol

Kynningarfundir vegna starfsemi Vörusmiðju BioPol á Skagaströnd verða haldnir í vikunni á Laugarbakka, Skagaströnd og í Skagafirði. Vörusmiðjan mun hafa öll tilskilin leyfi til matvælaframleiðslu og því verður mögulegt fyrir frumkvöðla og smáframleiðendur að taka fyrstu skrefin í þróun á vörum sínum eða stunda eiginlega framleiðslu.

Einnig verður aðstaða til að undirbúa veislur og bakstur fyrir stór tilefni. Hægt verður að leigja aðstöðuna undir námskeiðahald. Leigugjaldi verður stillt í hóf þar sem markmiðið er að styðja smáframleiðendur í að koma vöru sinni á markað og stuðla þannig að aukinni verðmætasköpun í heimabyggð, að því er segir á vef Biopol.

Fundirnir verða sem hér segir:

 Laugarbakki: Félagsheimilið Ásbyrgi, þriðjudaginn 22. ágúst kl. 15.00.

Skagafjörður: Kakalaskáli, miðvikudaginn 23. ágúst kl. 15.00.

Skagaströnd: Gamla Kaupfélagið, efrihæð, fimmtudaginn 24. ágúst kl. 14.00.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga