Ljósm. Jóhannes Jóhannesson
Ljósm. Jóhannes Jóhannesson
Ljósm. Jóhannes Jóhannesson
Ljósm. Jóhannes Jóhannesson
Ljósm. Jóhannes Jóhannesson
Ljósm. Jóhannes Jóhannesson
Ljósm. Jóhannes Jóhannesson
Ljósm. Jóhannes Jóhannesson
Ljósm. Jóhannes Jóhannesson
Ljósm. Jóhannes Jóhannesson
Pistlar | 22. ágúst 2017 - kl. 14:39
Stökuspjall: Nóg er yndi í Norðurlandi
Eftir Inga Heiðmar Jónsson

Róður þessi karlar kunnu
knúðu árarnar
svo að græðir froðufelldur
flaut um súðirnar.

Fyrir hreysti hlutu að launum
hafsins dýru gjöf.
– Sumir gistu að leiðarlokum
lagardjúpsins gröf.

segir Sigurður Gíslason um Vatnsnesinga þegar þeir komu í kaupstað að sækja nauðsynjar sínar.

Kaupmenn bæði og búðarþjónar
beittu höndum greitt.
– Mikinn skerf til skipa báru.
Skulduðu engum neitt. 

Ægisdjarfir ýttu af sandi,
öldum skeyttu lítt.
Út við sjónhring eygðist síðast
aðeins seglið hvítt.

En s.l. sunnudag fjölmenntu Húnvetningar og aðrir gestir út að Tjarnarkirkju á Vatnsnesi, sóknarpresturinn, sr. Magnús Magnússon flutti sögumessu þar sem María guðsmóðir og Lilja, sem allir vildu kveðið hafa komu mjög við sögu. Kórinn söng einmitt texta Þorsteins Gíslasonar: Ég leit eina lilju í holti, gamall texti við vinsælt lag sem er á leiðinni inn í nýja sálmabók. Organistinn í Tjarnarkirkju er Pálína Fanney eins og við Hvammstangakirkju. Í lok messunnar kvað Loftur á Ásbjarnarstöðum vísur eftir afa sinn Sigurð Jónsson. Þóra Kristín og Guðmundur Jósef Loftsbörn kváðu vísur langafa síns með föður sínum. Að lokinni messu var þáðu kirkjugestir kaffi og veislubrauð á Geitafelli í boði sóknarinnar. Þar flutti Ingi Heiðmar ávarp og kynnti vísnavefinn Húnaflóa, sem átti þriggja ára afmæli fyrr í þessum mánuði. Vísnavefurinn var líka kynntur í messuskránni. Guðsþjónustan og messukaffið var mjög fjölsótt, sólríkur dagur og glampaði á bláan flóann.

Kvæðamannafélagið Vatnsnesing hafa sveitungarnir starfrækt undanfarin ár undir forystu Lofts Guðjónssonar. Þeir komu fyrir nokkrum árum að heimsækja félaga sína í Kvæðamannafélaginu Iðunni í Gerðubergi eins og vikið var að í ávarpinu.  

Í fyrrasumar var haldin messa á Hofi á Skaga þar sem Jón Árnason frá Hofi var kynntur ásamt Vísnavefnum og var mjög ánægjulegt að sjá í Tjarnarkirkju nokkra kirkjugesti sem komið höfðu til messunnar í fyrrasumar. Sömuleiðis að þangað kom Vigdís Alfa Gunnarsdóttir frá Tjörn, ekkja sr. Róberts Jack sem lengi var þar prestur, en hún kom ásamt 3 börnum sínum og tengdabörnum, en vertinn á Geitafelli er eitt þeirra. Þar er góð þjónusta og þangað er gott að koma.

Spjalli lýkur með vísu Sigurðar Norland fyrrum skáldprests á Vatnsnesi, hann minnir á þörf nýbygginga í Húnaþingi og þær hittu gestir sannarlega fyrir á Geitafelli, sem gestgjafar festu kaup á fyrir 15 árum og taka móti gestum sínum með hlýju:

Þessi vandi þarf að enda,
þetta gengur ekki lengur.
Nóg er yndi í Norðurlandi,
nýbygging í Húnaþingi
taki við og eyðióðul
endurbyggist, mönnum tryggist.
Bændaóðul byggðust áður
best í þingi Húnvetninga.

Vísað er til:
Sigurður Gíslason https://www.huni.is/index.php?cid=13971
Ég leit eina lilju: http://bragi.info/hunafloi/ljod.php?ID=5451
Sigurður Jónsson: http://bragi.info/hunafloi/hofundur.php?U=s0&ID=17580
Ávarp IHJ í messukaffi á Geitafelli: http://stikill.123.is/blog/2017/08/21/768723/
Kvæðamannafélagið Iðunn: http://rimur.is/
Geitafell: http://geitafell.is/is/
Sig. Norland/Húnaþing: http://bragi.info/hunafloi/ljod.php?ID=5054
Guðsþjónusta að Hofi sumarið 2016: https://www.huni.is/index.php?pid=58&cid=13102
60 ára vígsluafmæli Hvammstangakirkju í lok júlí: https://www.huni.is/index.php?pid=32&cid=13955

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga