Fréttir | 12. september 2017 - kl. 15:08
Húsnæðisstuðningur til 15-17 ára nemenda

Sveitarfélögin Skagaströnd og Blönduós veita sérstakan húsnæðisstuðning til foreldra eða forsjáraðilar námsmanna yngri en 18 ára, sem leigja húsnæði vegna náms fjarri lögheimili. Með húsnæði er átt við herbergi á heimavist, námsgörðum eða sambærilega aðstöðu á almennum markaði. Húsnæðisstuðningurinn er óháður tekjum og eignum foreldra eða forsjáraðila og nemur 50% af leigufjárhæð. Hann getur þó aldrei orðið hærri en 45.000 krónur á mánuði.

Í samþykkt sveitarstjórnar Blönduósbæjar segir m.a. um húsnæðisstuðning til 15-17 ára barna: Foreldrar/forsjáraðilar geta sótt um stuðninginn á skrifstofu Blönduósbæjar. Veita skal sérstakan húsnæðisstuðning til foreldra eða forsjáraðila 15–17 ára barna sem leigja húsnæði hér á landi vegna náms fjarri lögheimili. Með húsnæði er átt við herbergi á heimavist, námsgörðum eða sambærilega aðstöðu á almennum markaði. Þegar fleiri en einn nemandi leigja saman íbúð getur húsnæðisstuðningur náð til þeirrar leigu enda sé gerður leigusamningur við hvern og einn. Um leigu á almennum markaði er gerð krafa um að hvorki umræddur nemandi né aðrir sem leigja húsnæðið séu náskyldir eða mikið tengdir leigusala. Sérstakur húsnæðisstuðningur vegna nemenda skal vera óháður tekjum og eignum foreldra eða forsjáraðila og nemur 50% af leigufjárhæð. Húsnæðisstuðningur vegna nemenda getur þó aldrei numið hærri fjárhæð en 45.000 kr. á mánuði. Með umsókn um slíkan stuðning skal leggja fram húsaleigusamning og staðfestingu á námi barns. Reglurnar í heild má finna á vef Blönduósbæjar undir "Samþykktir" og umsóknareyðublað er undir „Eyðublöð“

Í samþykkt sveitarstjórnar Skagastrandar segir m.a. um húsnæðisstuðning til 15-17 ára barna: Foreldrar/forsjáraðilar geta sótt um stuðninginn á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastandar. Veita skal sérstakan húsnæðisstuðning til foreldra eða forsjáraðila 15–17 ára barna sem leigja húsnæði hér á landi vegna náms fjarri lögheimili. Með húsnæði er átt við herbergi á heimavist eða námsgörðum eða sambærilega aðstöðu á almennum markaði. Þegar fleiri en einn nemandi leigja saman íbúð getur húsnæðisstuðningur náð til þeirrar leigu enda sé gerður leigusamningur við hvern og einn. Um leigu á almennum markaði er gerð krafa um að hvorki umræddur nemandi né aðrir sem leigja húsnæðið séu náskyldir eða mikið tengdir leigusala. Sérstakur húsnæðisstuðningur vegna nemenda skal vera óháður tekjum og eignum foreldra eða forsjáraðila og nemur 50% af leigufjárhæð. Húsnæðisstuðningur vegna nemenda getur þó aldrei numið hærri fjárhæð en 45.000 kr./mánuði. Með umsókn um slíkan stuðning skal leggja fram húsaleigusamning og staðfestingu á námi barns. Reglurnar í heild má finna á vef Skagastrandar undir "Samþykktir".

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga