Mynd: Byggðastofnun
Mynd: Byggðastofnun
Fréttir | 12. september 2017 - kl. 22:10
Lán til nýsköpunar á landsbyggðinni

Nýsköpunarlán er nýr lánaflokkur sem Byggðastofnun hefur hleypt af stokkunum í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Á vef Byggðastofnunar segir að nýsköpunarlánin munu skapa grundvöll til aukinnar nýsköpunar og þar með aukinna atvinnutækifæra í landsbyggðunum. Aðgengi að fjármagni til nýsköpunar utan höfuðborgarsvæðisins hafi verið takmarkað og frumkvöðlar talið lítinn stuðning þar að finna. Nýsköpunarlánum sé ætlað að bæta úr þessu með bættu aðgengi að þolinmóðu lánsfjármagni.

Nýsköpunarlán verða veitt til allt að fimm ára með sveigjanlegu endurgreiðsluflæði. Hámarkslánveiting í hvert verkefni verður 5 milljónir króna enda sé eiginfjárframlag að lágmarki jafnhátt. Tryggingar verði í formi veðsetningu hugmyndar/vörumerkis/vöru/þjónustu en lánunum fylgir jafnframt breytiréttur í hlutafé.  Nýsköpunarmiðstöð Íslands mun greina lánsbeiðnir með tilliti til vægis nýsköpunar og skila umsögn til Byggðastofnunar til frekari úrvinnslu, ákvörðunar og afgreiðslu.

Nánar má lesa um þennan nýja lánaflokk hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga