Fréttir | 19. september 2017 - kl. 09:21
Árleg inflúensubólusetning

Árleg inflúensubólusetning verður á Heilsugæslustöðinni á Blönduósi og Skagaströnd í næstu viku. Í auglýsingu frá Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi er sérstaklega mælt með að einstaklingar 60 ára og eldri, einstaklingar með langvinna sjúkdóma, heilbrigðisstarfsfólk og þungaðar konur láti bólusetja sig. Þessir hópar fá bóluefnið frítt en þurfa að greiða komugjald. Einnig er mælt með því að sömu einstaklingar séu bólusettir á 10 ára fresti gegn lungnabólgu.

Bólusett verður á Heilsugæslustöðinni á Blönduósi:

Þriðjudaginn 26. september, klukkan 11:00-13:00.
Fimmtudaginn 28. september, klukkan 13:00-15:00.
Föstudaginn 29. september, klukkan 10:00-12:00.

Bólusett verður á Heilsugæslustöðinni á Skagaströnd:

Fimmtudaginn 28. september, klukkan 9:00-11:00.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga