Fréttir | 19. september 2017 - kl. 09:33
Styrkjum úthlutað úr atvinnu- og nýsköpunarsjóði Húnaþings vestra

Atvinnu- og nýsköpunarsjóður Húnaþings vestra hefur úthlutað styrkjum, alls að fjárhæð tveimur milljónum króna, til þriggja verkefna í Húnaþing vestra en alls bárust sjóðnum fjórar styrktarumsóknir. Stærsta styrkinn fékk Gerður Rósa Sigurðardóttir vegna verkefnisins „Skrúðvangur gróðurhús,“ alls ein milljón króna. Guðmundur Haukur Sigurðsson fékk sjöhundruð þúsund krónur vegna verkefnisins „Húnaþing vestra, viðkomustaður allt árið,“ og Ferðamálafélag Húnaþings vestra fékk þrjúhundruð þúsund krónur vegna verkefnisins „App fyrir Vatnsnes og nágrenni“.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga