Tilkynningar | 21. september 2017 - kl. 13:38
Kjördæmisþing Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi
Tilkynning frá kjördæmaráði

Kjördæmisráð Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi boðar til kjördæmisþings laugardaginn 23. september klukkan 12 til að ákveða aðferð við val á framboðslista. Fundað verður í húsnæði Samfylkingarinnar á Akranesi, Stillholti 16-18.

Stjórn kjördæmisráðs hvetur alla félagsmenn til að mæta á kjördæmisþingið og taka þátt í undirbúningi og umræðum vegna komandi alþingiskosninga.

Fyrir hönd stjórnar kjördæmisráðs,
Ólafur Ingi Guðmundsson, formaður

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga