Skjáskot af blonduos.is
Skjáskot af blonduos.is
Fréttir | 21. september 2017 - kl. 16:32
Ný heimasíða hjá Blönduósbæ

Blönduósbær hefur gert gagngerar breytingar á vef sveitarfélagsins. Markmiðið er að gera upplýsingar aðgengilegri og miðla þannig upplýsingum til íbúa sveitarfélagsins og annarra áhugasamra með betri hætti. Á blonduos.is segir að vefsíðan verði í stöðugri þróun, flestar upplýsingar af eldri síðunni séu komnar inn á þá nýju og smátt og smátt verði það sem betur megi fara lagað og uppfært.

Þá eru þeir sem hafa góðar hugmyndir og ábendingar varðandi vefinn hvattir til að hafa samband á netfangið katrin@blonduos.is.  

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga