Fréttir | 11. október 2017 - kl. 21:18
Sveitarfélagið Húnaþing vestra er á meðal sautján sveitarfélaga sem fá byggðastyrk til lagningar ljósleiðara. Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur ákveðið að verja samtals 100 milljónum króna af fjárveitingu byggðaáætlunar árið 2018 til að gera strjálbýlum sveitarfélögum hægara um vik við lagningu ljósleiðarakerfa. Sambærilegur styrkur var veittur vegna slÃkra framkvæmda árið 2017.
Að þessu sinni verður 14 sveitarfélögum boðinn styrkur, samtals að upphæð 90 milljónir króna. Styrkupphæð hvers sveitarfélags ræðst af fjárhagsstöðu og meðaltekjum Ãbúa, byggðaþróun sÃðastliðin tÃu ár, þéttleika og hlutfalli ótengdra staða sem og fjarlægð byggðar frá þjónustukjarna og ástandi vega. Að auki verður samtals 10 miljónum úthlutað beint til tiltekinna byggðalaga sem falla undir verkefnið Brothættar byggðir. Styrkupphæð til hvers sveitarfélags er á bilinu 1,0 – 15,1 m.kr. Markmið byggðastyrksins er að bæta samkeppnisstöðu tiltekinna sveitarfélaga gagnvart umsóknum þeirra à samkeppnispott fjarskiptasjóðs. Umsóknarferli fjarskiptasjóðs vegna 2018 verður kynnt á næstunni.
Húnaþing vestra fær næst hæsta styrkinn eða 11,7 m.kr. Hæsta styrkinn fær Borgarbyggð að fjárhæð 15,1 m.kr. Sveitarfélagið Skagafjörður fær 5,8 m.kr. og Strandsbyggð fær 1 m.kr. Sjá má byggðastyrkina til sveitarfélaganna hér.