Ljósm: hnv.is
Ljósm: hnv.is
Fréttir | 12. október 2017 - kl. 11:28
Heimilt að fjarlægja bílflök af einkalóðum

Heilbrigðiseftirliti hefur heimild til þess að fjarlægja númerslausa bíla í slæmu ástandi af einkalóðum á þeirri forsendu einni að um sé að ræða lýti á umhverfinu. Þetta kemur fram í nýjum úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindanefndar sem kveðinn var upp 3. október síðastliðinni. Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra vekur athygli á þessi á vef sínum.

Úrskurðað var í kærumáli á hendur Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja sem fjarlægði, númerslausan ryðgaðan bíl í slæmu ástandi, af einkalóð.

Á vef HNV segir að ljóst sé að úrskurðurinn auðveldi mjög tiltekt á einkalóðum en hingað til hafi eftirlitið litið svo á að ríkari forsendur þyrftu til þess að fjarlægja númerslausa bíla af einkalóðum, s.s. að olía væri að leka af bílum eða þá að rúður og ljós væru brotin þannig að slysahætta stafaði af.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga