Jón Brynjar og Snjólaug
Jón Brynjar og Snjólaug
Fréttir | 19. október 2017 - kl. 20:33
Jón Brynjar og Snjólaug eru skotíþróttafólk Markviss 2017
Frá Skotfélaginu Markviss

Nú er keppnistímabili lokið þetta árið í þeim skotgreinum sem stundaðar eru utanhúss. Alls átti Skotfélagið Markviss níu keppendur í hagla og kúlugreinum á nýliðnu keppnistímabili, aldursdreifing keppenda var með almesta móti og átti félagið fulltrúa í flestum flokkum frá unglinga og upp í öldungaflokk.

Líkt og verið hefur tilnefnir stjórn Markviss skotíþróttafólk úr röðum keppenda sinna til titilsins Íþróttamaður ársins innan USAH. Að venju voru valdir einstaklingar úr bæði hagla og kúlugreinum,og er árangur keppenda hafður til hliðsjónar við valið. Að þessu sinni urðu þau Snjólaug M.Jónsdóttir og Jón Brynjar Kristjánsson fyrir valinu en þau náðu bæði frábærum árangri á árinu.

Aðalkeppnisgrein Snjólaugar er Ólympískt Skeet en þar vann hún alla titla sem í boði voru auk þess sem hún jafnaði Íslandsmet kvenna í final. Þá keppti hún einnig á Íslandsmeistaramótinu í Nordisk Trap sem fram fór á Akranesi og vann það, og setti í leiðinni  Íslandsmet í kvennaflokki.

Snjólaug keppti á 10 mótum í þremur mismunandi haglagreinum og náði eftirfarandi árangri:

Landsmót STÍ  Skeet Akureyri = 2 sæti kvennafl.
Hvítasunnumót Markviss Skeet = 1 sæti A-fl.
Landsmót STÍ Skeet Akranes = 2 sæti kvennafl.
Landsmót STÍ Skeet Blönduós = 2 sæti kvennafl.
Byrjendamót Sporting Akureyri = 3 sæti.
NLM-OPEN (Norðurlandsmót) Skeet Akureyri = 5 sæti /Norðurlandsmeistari kvenna.
Íslandsmót STÍ ,Nordisk Trap, Akranes = Íslandsmeistari kvenna/Íslandsmet/Hæsta skor mótsins. Íslandsmót STÍ Skeet Þorlákshöfn = Íslandsmeistari kvenna/íslandsmeistari í flokkakeppni kvk.
Bikarmót STÍ Skeet Reykjavík = Bikarmeistari kvenna / jöfnun á íslandsmeti í final.
Afmælismót Skotgrundar = 1 sæti kvk.

Aðalkeppnisgrein Jóns Brynjars undanfarin ár hefur verið BR50, og hafnaði hann í verðlauna sæti á öllum BR50 mótum sem hann tók þátt í á þessu ári. Einnig hefur hann með góðum árangri verið að fikra sig yfir í keppnisgreinar með stærri rifflum, t.d. hafnaði hann í  4  sæti á Íslandsmeistaramóti STÍ í  VFS (Varmint for Score) sem haldið var af Skotfélagi Húsavíkur nú í haust.

Jón Brynjar keppti á 12 mótum og var árangur hans eftirfarandi:

Páskamót Akureyri, centerfire -VFS.óbreyttir veiðirifflar. 100m færi = 11 sæti.
Páskamót Akureyri,centerfire - VFS breyttir veiðirifflar. 100m færi = 6 sæti.
Hvítasunnumót Markviss, Skeet = 2 sæti í A-fl.
Vormót SA, Akureyri, 22lr BR50. 50m færi = 3 sæti.
Skaustmót, Egilsstaðir, 22lr BR50. 50m færi = 1 sæti.
17. júní mót, Grundarfjörður, 22lr BR50. 50m færi = 2 sæti.
17. júní mót, Grundarfjörður,centerfire VS opinn flokkur = úrslit vantar.
Skaustmót, Egilsstaðir, 22lr BR50. 50m færi = 1 sæti.
Miðnæturmót, Húsavík,VFS Heavy Varmint,100/200m færi = 6/10 sæti.
Höskuldsmót, Markviss, Skeet =1 sæti B-fl.
Grúppumót,Akureyri,Grúppur Heavy Varmint. 100m  færi. = 3 sæti.
Íslandsmót STÍ,Húsavík, VFS Heavy Varmint. 100/200 m færi. = 3/6 sæti og 4 sæti í samanlögðu.

Fh. Stjórnar Skotfélagsins Markviss
​Guðmann Jónasson

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga