Pistlar | 31. október 2017 - kl. 10:28
Þakkir frá Ungmennasambandi Austur-Húnvetninga
Frá stjórn USAH

Kæru Húnvetningar

Húnavökuritið hefur verið gefið út af Ungmennasambandi Austur-Húnvetninga samfellt frá árinu 1961. Ritið hefur að geyma gífurlega mikinn fróðleik um líf og störf Húnvetninga sem og starfsemi félaga og fyrirtækja í sýslunni. Ritnefnd Húnavökuritsins hefur á hverju ári lagt á sig mikla vinnu við efnisöflun og uppsetningu ritsins og er það afar óeigingjörn vinna sem ber að þakka.

Síðustu tvö ár hefur dreifing og sala á Húnavökunni verið með öðru sniði en áður var. Ritið var nú borið í öll hús í sýslunni og valgreiðslukrafa stofnuð í heimabanka eins heimilismanns. Þessi leið var farinn til þess að kynna ritið betur fyrir íbúum sýslunnar. Ýmsar nýjungar hafa komið inn í ritið svo sem myndir af fermingarbörnum og nýfæddum Húnvetningum sem eykur enn á sögugildi ritsins fyrir sýsluna alla.

Stjórn USAH vill þakka ritnefnd Húnavökunnar, öllum þeim fyrirtækjum og sveitarfélögum sem styrktu útgáfuna með auglýsingum, Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra og öllum þeim sem hafa tekið ritinu fagnandi og greitt fyrir Húnavökuna. Þessi stuðningur rennir styrkum stoðum undir starfsemi USAH og útgáfu ritsins.

Að lokum vill stjórn USAH hvetja þá sem hafa fengið Húnavökuritið inn til sín, og eiga eftir að skoða bókina, til þess að opna hana og sjá þann gríðarlega fróðleik sem í henni er að finna. Enn er hægt að greiða kröfurnar í heimabankanum og er allur stuðningur ákaflega mikils metin.

Ef einhver vantar eintak af Húnavöku 2017 eða eintak úr eldri árgöngum er hægt að hafa samband við Rúnar í síma 662-6841 eða senda tölvupóst á netfangið usah540@simnet.is. 

Stjórn USAH

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga