Fréttir | 13. nóvember 2017 - kl. 14:21
Stofna fjórar byggingalóðir í landi Húnavalla

Húnavatnshreppur hefur samþykkt stofnun fjögurra byggingalóða í landi Húnavalla og eru þær í samræmi við samþykkt deiliskipulag. Lóðirnar eru við Steinholt 1, 2, 3 og 4 og eru fyrir tvö parhús og tvö einbýlishús. Einar K. Jónsson sveitarstjóri Húnavatnshrepps segir að ákvörðun þessi sé tilkomin vegna óformlegra fyrirspurna um lóðir hjá sveitarfélaginu. Hann segir þetta ánægjuleg tíðindi, sérstaklega í ljósi þess að þetta er í fyrsta sinn í 31 ár sem lóð er úthlutað fyrir íbúðahús í skipulögðu hverfi í sveitarfélaginu.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga