Nöldrið | 11. desember 2017 - kl. 16:32
Desembernöldur

Ég veit ekki um ykkur en mér  finnst eins og aðeins séu nokkrar vikur síðan við héldum síðast heilög jól. En nú eru ekki  nema nokkrir dagar þar til aftur eru komin jól.

Nú er best að leggja allt nöldur til hliðar og gleðjast frekar yfir því sem í vændum  er. Gleðjast yfir  öllum ljósunum sem prýða bæinn sem aldrei fyrr og gera umhverfið svo jólalegt. Og svo hvet ég alla Blönduósinga til þess að taka þátt í jólaleik Húnahornsins þar sem Jólahús ársins er valið.

Desember er að verða annasamasti  mánuður ársins hjá mörgum. Fyrir utan allt annríkið á heimilum landsmanna við jólaundirbúninginn, þarf að njóta veislumatar af jólahlaðborðum, sækja eina eða fleiri jólatónleika að ógleymdu því að kíkja inn á jólamarkaðina. Og vegna þess að allir hafa í nógu að snúast þessa síðustu daga ársins er Nöldri stuttorður að þessu sinni.

Öllum „velunnurum“ Nöldra  og öðrum þeim sem lesa pistla hans óska ég gleðilegra jóla og bið þess að árið 2018 verði okkur landsmönnum gott til sjávar og sveita.

Hittumst heil á nýju ári.

Nöldri.

Höf. Nöldri

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga