Pistlar | 12. desember 2017 - kl. 11:54
Fyrir tveimur vikum sÃðan, þann 28. nóvember, hélt ég styrktartónleika fyrir orgelsjóð Blönduóskirkju. Ég hugsaði með mér að ég gæfi fólki frekari tækifæri til þess að hlýða á hið glæsilega hljóðfæri nokkrum sinnum næstu mánuðina og vonaðist til þess að Blönduósingar og þeir úr nágrenninu hefðu einhvern áhuga á að koma og njóta! FrÃtt var inn en boðið var upp á það að styrkja viðhaldssjóð hljóðfærisins, enda þurfti að fara að huga að yfirferð á næstunni. Mæting á þessa fyrstu styrktartónleika var stórgóð, eitthvað á milli 50 – 60 manns á öllum aldri létu sjá sig og var mér persónulega vel tekið ásamt þess að tónleikagestir dásömuðu meistara Bach sem þeir hlýddu á.
Söfnunin gekk glimrandi vel, framar mÃnum allra björtustu vonum og söfnuðust u.þ.b. 100.000 kr. à viðhaldssjóð! Þessi upphæð nær hátt à 50% á þeim viðhaldskostnaði sem við búumst við næsta haust. Þetta er ómetanlegt og er ég innilega þakklátur fyrir gjafmildina og þann áhuga sem þið sýnið hljóðfærinu!
Með bestu kveðjum,
Eyþór Franzson Wechner
organisti