Fréttir | 15. desember 2017 - kl. 16:08
HSN kallar eftir auknum fjárframlögum

Framkvæmdastjórn Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) lýsir yfir vonbrigðum með nýútgefið fjárlagafrumvarp. Í tilkynningu frá stofnuninni segir að í þeim auknu fjárframlögum sem ætluð eru til að styrkja rekstur heilbrigðisþjónustu í landinu sé litið framhjá heilbrigðisstofnunni og í staðinn sett 20 milljóna króna hagræðingarkrafa á hana. 

Heilbrigðisstofnun Norðurlands veitir öfluga þjónustu á mörgum sviðum og reksturinn er í jafnvægi. Starfssvæði stofnunarinnar nær frá Blönduósi til Þórshafnar og sinnir allri heilsugæslu á því svæði,  en íbúar eru rúmlega 35.000 þús. Einnig er stofnunin með fjögur almenn sjúkrahús með 149 hjúkrunar-, sjúkra- og dvalarrýmum.

Í tilkynningunni segir að líkt og annar staðar séu íbúar að eldast og skjólstæðingar veikari þegar þeir útskrifast af sjúkrahúsum. Samkvæmt lýðheilsuvísum landlæknis 2016 og 2017 séu marktækt fleiri íbúar á Norðurlandi sem meta bæði líkamlega og andlega heilsu sína slæma eða lélega samanborið við landsmeðaltal. Það sé staðreynd að aðgengi íbúa á Norðurlandi að sérfræðiþjónustu lækna sé mun minna en á höfuðborgarsvæðinu. Minni sérfræðiþjónusta eykur álag á heilsugæsluna og því sé nauðsynlegt að efla heilsugæslu og alla þjónustu í kringum hana fyrir íbúa á svæðinu. Til þess þurfi að veita auknum fjármunum m.a. til heimahjúkrunar og geðþjónustu og til að bæta aðgengi að læknum og öðru fagfólki.

Heilbrigðisstofnun Norðurlands skorar á heilbrigðisráðherra og þingmenn að bregðast við og sjá til þess að á Norðurlandi verði heilbrigðisþjónustan styrkt með auknum fjárframlögum eins og annarsstaðar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga