Fréttir | 15. desember 2017 - kl. 16:19
Hérumbil, Húnaþingi, frumsýnt á Hvammstanga

Leikflokkurinn á Hvammstanga frumsýnir í kvöld leikritið Hérumbil, Húnaþingi. Sýningin fer fram í Félagsheimilinu Hvammstanga klukkan 20 en húsið opnar klukkutíma fyrr. Einnig verða sýningar laugardaginn 16. desember og sunnudaginn 17. desember en báðar hefjast þær klukkan 20.

Sýningin í kvöld er frumflutningur verksins Almost, Maine á íslensku en það er eftir John Cariani. Verkið hefur verið sett upp af 70 atvinnuleikfélögum og yfir 2.500 áhugaleikfélögum. Ingunn Snædal þýddi verkið sérstaklega fyrir Leikflokkinn á Hvammstanga. Leikstjóri er Sigurður Líndal Þórisson.

Miðaverð er kr. 2.500 og kr. 1.500 fyrir grunnskólakrakka.

Miðapantanir í síma 655 9052 (Kristín), á netfanginu kristin@dottirwebdesign.is. 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga