Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 19. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 09:10 0 0°C
Laxárdalsh. 09:10 0 0°C
Vatnsskarð 09:10 0 0°C
Þverárfjall 09:10 0 0°C
Kjalarnes 09:10 0 0°C
Hafnarfjall 09:10 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Pistlar | 08. janúar 2018 - kl. 09:03
Festumst ekki í fortíðinni
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson

Markmið eru sett, áföngum er náð, tímamót verða. Fjallið er klifið, toppnum er náð. Þá koma í ljós nýir toppar, ný markmið, nýir áfangar.

Þrátt fyrir öll tímamót og fjarlæg markmið sem oft virðast eins og lokatakmark þá heldur lífið áfram.

Þrátt fyrir allt mótlæti, torfærur og brekkur, baráttu og ósigra, og jafnvel þótt ævinni ljúki fyrr en við vildum, já jafnvel þrátt fyrir sjálfan dauðann, sem eru sannkölluð tímamót, þá heldur lífið áfram og ekkert fær það stöðvað.

Ekkert ár er án áfall

Ekkert ár er án áfalla og ekkert ár er gleðisnautt. Þótt áföllin séu erfið og sár á meðan þau ganga yfir og skilji eftir sig illgræðanleg sár eða í besta falli ör bæði ljúfra og sárra minninga, þá geta þau engu að síðir oft orðið að dýrmætri reynslu þegar frá líður. Minningum sem þú átt og getur byggt framtíðina á og enginn og ekkert megnar frá þér að taka. Gætum þess bara að festast ekki í fortíðinni.

Verum ekki feimin við framtíðina

Þú sem veist hvað þú hefur en veist ekki hvað verður, forðastu ekki framtíðina. Sláðu henni ekki á frest. Hafðu djörfung og áræði til að stíga inn í hana. Því kyrrstöðu og stöðnun fylgir dauði en hreyfingu fylgir líf.

Þú sem veist hvað þú hefur en veist ekki hvað verður. Áttaðu þig á því hver þú ert og hvað þú vilt og hvert þú vilt stefna. Sláðu ekki hamingjunni á frest. Njóttu þess að vera sá sem þú ert. Gefðu draumana þína ekki upp á bátinn. Njóttu þess að lifa, hrærast og vera, núna.

Og ræktum með okkur að sjá samferðafólk okkar með augnaráði hjartans. Hjartans sem á uppsprettu í faðmi frelsarans. Hans sem er lífið sjálft.

Til að hafa eitthvað að gefa og einhverju að miðla þurfum við nefnilega að læra að þiggja. Við þurfum að rækta okkur sjálf, velja að takast á við lífið eins og það er og temja okkur hugarfar virðingar og umhyggju, sátta, fyrirgefningar og þakklætis.

Allt er að breytast

Dagurinn í dag eða dagurinn í gær? Okkar er valið. Við getum ekki lifað báðum. Annað hvort festumst við í fortíðinni eða lifum deginum í dag og horfum fram á veginn með reynslu fortíðar sem bakgrunn en ekki sem stjórnanda.

Allt er að breytast, jörðin nötrar og himininn logar. En kærleikur Guðs stendur stöðugur og er ávallt hinn sami. Því Jesús Kristur er í dag og í gær hinn sami og um aldir og eilífð.

Siðir, hefðir og viðteknar venjur kunna að koma og fara. Lög og reglur, menning og viðmið breytast. En dæmisögur Jesú, kærleikur og fyrirheit, friður, orð, ást og verk munu áfram halda ferskleika sínum. Vekja til umhugsunar um lífið, mannkærleika og það sem máli skiptir. Svo lengi sem veröldin stendur. Þrátt fyrir allt og alla, strauma og skoðanir, ákvarðanir og stefnur.

Missum ekki trúna á lífið

Látum því engan líta smáum augum á trú okkar. Því að hún er ekki spurning um mikið eða lítið. Heldur allt eða ekkert. Að trúa á lífið er að trúa á Guð, höfund þess og fullkomnara. Og að trúa á Guð er að trúa á lífið. Það er trúin sem ber okkur alla leið. Þeir sem eiga himininn í hjartanu og nafn sitt letrað í lífsins bók þurfa því ekki að óttast bál hvöss tannaför tilverunnar og þá taumlausu ógn sem frá henni stafar því þeir eiga lífið framundan.

Himneskt er að vera með vorið vistað í sálinni, sólina og eilíft sumar í hjarta. Því hamingjan felst í því að vera með himininn í hjartanu.

Guð gefi okkur öllum gleðilegt og hamingjuríkt ár.

Með kærleiks- og friðarkveðju.

Lifi lífið!

Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.

Höf. rzg
Helgi Haukur Helgason, framkvæmdastjóri Bríetar og Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra. Mynd. hunathing.is
Helgi Haukur Helgason, framkvæmdastjóri Bríetar og Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra. Mynd. hunathing.is
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 20:37
Húnaþing vestra og Leigufélagið Bríet hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu leiguíbúða í Húnaþingi vestra. Í yfirlýsingunni lýsa aðilar yfir vilja til samstarfs um uppbyggingu leiguíbúða í sveitarfélaginu auk þess sem Húnaþing vestra leggur til íbúðir í sinni eigu í gegnum svokölluð yfirtökuverkefni. Viljayfirlýsing þessi kemur til viðbótar samkomulagi sem undirritað var á dögunum milli innviðaráðuneytis, Húnaþings vestra og HMS um uppbyggingu allt að 50 íbúða til sölu og leigu á næstu fimm árum.
Glaðheimar
Mynd. skagastrond.is
Mynd. skagastrond.is
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 20:23
Árleg kökukeppni Undirheima, sem er félagsmiðstöð fyrir unglinga í Höfðaskóla, var haldin í gærkvöldi. Keppendur voru tólf talsins og voru tveir til þrír saman í hóp. Skreyta þurfti kökurnar á staðnum og höfðu keppendur 60 mínútur til þess að ljúka verkinu. Að því loknu valdi þriggja manna dómnefnd þrjú efstu sætin sem frumlegustu kökuna, besta bragðið og fallegustu kökuna. Að hennar sögn var valið ekki auðvelt. Sagt er frá þessu á vef Skagastrandar.
Lið Grunnskóla Húnaþings vestra. Mynd: FB/Grunnskóli Húnaþings vestra
Lið Grunnskóla Húnaþings vestra. Mynd: FB/Grunnskóli Húnaþings vestra
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 06:05
Lið Grunnskóla Húnaþings vestra er komið í úrslit Skólahreysti en keppt var í Laugardagshöll og sýnt beint á RÚV. Liðið stóð sig frábærlega og sigraði riðilinn sinn. Úrslitakeppnin fer fram 25. maí næstkomandi. Lið Grunnskóla Húnaþings vestra skipa þau Friðrik Hrafn Hannesson, Saga Ísey Þorsteinsdóttir, Victor Þór Sigurbjörnsson, Nóa Sophia Ásgeirsdóttir, Indriði Rökkvi Ragnarsson og Victoría Elma Vignisdóttir.
Frá æfingunni í Krúttinu á Blönduósi. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Frá æfingunni í Krúttinu á Blönduósi. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 05:59
Viðbragðsaðilar á Norðurlandi vestra stefna á að halda hópslysaæfingu 11. maí næstkomandi. Hluti hópsins hittist á Blönduósi í fyrradag og æfðu viðbragð við flugslysi og rútuslysi, þar sem settar voru upp tvær borðæfingar. Æfingarnar eru undirbúningur fyrir stóru æfinguna í maí og er samvinna lykilinn að góðri útkomu, eins og segir á facebooksíðu Lögreglunnar á Norðurlandi vestra. „Samhæft viðbragð skilar betri þjónustu til borgaranna.“
Þórdís Kolbrún og Sigríður á aðalfundinum. Mynd: xd.is
Þórdís Kolbrún og Sigríður á aðalfundinum. Mynd: xd.is
Fréttir | 17. apríl 2024 - kl. 06:10
Sigríður Ỏlafsdóttir úr Húnaþingi vestra var endurkjörin formaður kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi en ráðið hélt aðalfund sinn á Laugum í Sælingsdal um síðustu helgi. Á fundinum var samþykkt stjórnmálaályktun þar sem meðal annars er komið inn á að atvinnufrelsi og eignarréttur sé órjúfanlegur hluti frjáls samfélags og forsenda þess að hægt sé að tryggja jöfn tækifæri í landinu.
Hólmfríður, rektor við Háskólann á Hólum tekur við viðurkenningunni frá Katrínu, framkvæmdastjóra SSNV.
Hólmfríður, rektor við Háskólann á Hólum tekur við viðurkenningunni frá Katrínu, framkvæmdastjóra SSNV.
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 14:48
Tilkynning frá Háskólanum á Hólum
Háskólinn á Hólum hlýtur Byggðagleraugu Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra fyrir framsækið og metnaðarfullt starf. Námið við háskólann er sértækt að því leyti að það byggir á traustum grunni fyrir mikilvægar framtíðar atvinnugreinar í samfélaginu þar á meðal íslenska hestinn, ferðaþjónustu í dreifbýli og fiskeldi, en skólinn hefur dregið til sín nemendur víðsvegar að úr heiminum. Í Háskólanum á Hólum er öflugt háskólastarf sem er í stöðugum vexti og nýsköpun.
Frá Skagaströnd
Frá Skagaströnd
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 05:32
Sveitarfélagið Skagaströnd heldur íbúafund í Fellsborg miðvikudaginn 17. apríl klukkan 17:00. Á dagskrá eru fjölmörg mál eins og staðan á hafnarframkvæmdum, breyting á námsstofu, sorpmál, vinnuskóli, gjaldskrár og kjarasamningar.
Sr. Sigríður Gunnarsdóttir. Mynd: kirkjan.is
Sr. Sigríður Gunnarsdóttir. Mynd: kirkjan.is
Fréttir | 16. apríl 2024 - kl. 05:27
Sr. Sigríður Gunnarsdóttir sóknarprestur í Skagafjarðarprestakalli hefur verið skipuð prófastur í Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi. Hún tekur við af sr. Döllu Þórðardóttur á Miklabæ, sem lét af störfum 1. desember síðastliðinn. Frá þeim tíma hefur sr. Gísli Gunnarsson vígslubiskup á Hólum gegnt prófstsstörfum.
Frá Hvammstanga
Frá Hvammstanga
Tilkynningar | 16. apríl 2024 - kl. 05:17
Frá Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra
Aðalfundur Félags eldri borgara í Húnaþingi vestra verður haldinn miðvikudaginn 17. apríl 2024 klukkan 14:00 í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, skýrsla og tillögur ferðanefndar og margt fleira. Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri verður gestur fundarins. Kaffiveitingar að hætti kaffinefndar. Nýir félagar ávallt velkomnir.
Tilkynningar | 16. apríl 2024 - kl. 05:13
Frá stjórn
Aðalfundur Hollvinasamtaka heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi verður haldinn í fundarsal HSB föstudaginn 26. apríl næstkomandi klukkan 16.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Fréttir | 15. apríl 2024 - kl. 09:43
Knattspyrnulið Kormáks Hvatar mætti í Fífuna í Kópavogi í gær og spilaði gegn Augnabliki í 2. umferð Mjólkurbikarsins. Leikurinn fór fjörlega af stað og vel fyrir gestina því Papa Diounkou Tecagne skoraði fyrsta mark leiksins á 9. mínútu. Heimamenn voru ekki lengi að svara með marki á 13. mínútu og öðru marki á 31. mínútu. Staðan í hálfleik 2-1 fyrir Augnablik. Í seinni hálfleik voru skoruð fjögur mörk, þrjú af heimamönnum og einn af gestunum, en það gerði Kristinn Bjarni Andrason. Leikurinn endaði því 5-2 fyrir Augnablik.
Kórinn á Blönduósi 1939
Kórinn á Blönduósi 1939
Pistlar | 14. apríl 2024 - kl. 17:16
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Úr dagbók Jónasar Tryggvasonar í Finnstungu fyrir 79 árum: Sun. 8. apríl 1945: Bar lítið til tíðinda. Skagfirska skáldkonan Ỏlína Jónasdóttir er sextug í dag. Vísur hennar eru löngu landfleygar og á hvers manns vörum, þess er yndi hefur af snilld fagurrar stöku. Ég hef ekki, svo ég muni til, heyrt vísu eftir Ỏlínu, sem ekki hafi verið vel gerð, en meiri eða minni snilldarbragur er á þeim flestum ...
Pistlar | 13. apríl 2024 - kl. 16:15
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
Þegar við hugsum um leiðir til að bæta heilsu samfélagsins þá hugsum við ekki alltaf um aðgengi að listum. En þegar við hugsum um það þá eru listir ein tegund tilfinningatjáningar. Hvort sem það er hamingja eða örvænting þá er það nauðsynlegt að hafa útrás til að nálgast tilfinningar á heilbrigðan og öruggan hátt. Samfélög sem styðja við listir, koma saman til að skapa list saman, hafa sýnt sig að vera tengdari
Frá ársþinginu. Mynd: ssnv.is
Frá ársþinginu. Mynd: ssnv.is
Fréttir | 13. apríl 2024 - kl. 10:27
Þrítugasta og annað ársþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra var haldið á fimmtudaginn í Félagsheimilinu á Blönduósi og heppnaðist vel, að því er segir á vef samtakanna. Góð mæting var á þingið en á meðal gesta voru kjörnir fulltrúar á Norðurlandi vestra og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fjölbreytt og áhugaverð erindi voru flutt og ný samgöngu- og innviðaáætlun kynnt. Fram kemur á vef SSNV að frekari upplýsinga er að vænta um það sem fram fór á þinginu.
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið