Ljósm: hunathing.is
Ljósm: hunathing.is
Fréttir | 10. janúar 2018 - kl. 12:59
Íbúafundur um deiliskipulagstillögu hafnarsvæðisins á Hvammstanga

Haldinn verður íbúafundur á Hvammstanga, mánudaginn 15. janúar næstkomandi, um deiliskipulagstillögu hafnarsvæðisins. Óskar Örn Gunnarsson skipulagsfræðingur hjá Landmótun sf. mun kynna deiliskipulagstillöguna og Engilbert Runólfsson verktaki, sem sótt hefur um lóð að Höfðabraut 28, mun kynna sínar hugmyndir um byggingu fimm hæða og 20 íbúða húss.

Þeir Óskar og Engilbert munu svo sitja fyrir svörum ásamt fulltrúa sveitarstjórnar og byggingarfulltrúa. Boðið verður uppá kaffi og kleinur. Fundurinn verður í Félagsheimilinu á Hvammstanga og hefst klukkan 20:00. Áætlað er að hann standi í tvo klukkutíma.

Vildi byggja fimm hæða fjölbýlishús á Blönduósi í fyrra
Engilbert Runólfsson á fyrirtæki sem heitir Uppbygging ehf. en hann rak á árum áður fyrirtækið Stafna á milli sem keypti m.a. eitt um eitt umsvifamesta byggingafélag landsins Ris ehf. árið 2007. Ris varð gjaldþrota 2010 en um 330 störfuðu hjá fyrirtækinu þegar mest lét.

Í desember 2016 barst bæjarráði Blönduósbæjar fyrirspurn frá Uppbyggingu um lóð á Blönduósi sem afmarkast af Húnabraut 4, austurenda íþróttavallar, Holtabrautar og Melabrautar. Óskaði fyrirtækið eftir að fá að byggja 20 íbúða fjölbýlishús á fimm hæðum og var áætlað að verktími myndi standa frá vori 2017 til vors 2018. Ekkert hefur meira heyrst um fyrirhugaðar framkvæmdir en byggðaráð Blönduósbæjar fagnaði erindinu á sínum tíma og var sveitarstjóra og tæknideild falið að vinna það frekar.

Tengd frétt:

Vill byggja 20 íbúða fjölbýlishús á Blönduósi

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga