Ljósm: thytur.123.is
Ljósm: thytur.123.is
Fréttir | 21. janúar 2018 - kl. 10:23
Firmakeppni Þyts

Hestamannafélagið Þytur heldur sína árlegu firmakeppni laugardaginn 10. febrúar og hefst hún klukkan 14:00  í Þytsheimum. Keppt verður í fimm flokkum; polla, barna, unglinga, karla og kvennaflokki. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki nema í pollaflokki þar fá allir keppendur viðurkenningu fyrir þátttöku.

Firmakeppnisnefnd Þyts hvetur alla til að mæta vel skreyttir og eiga skemmtilegan dag saman. Búningaverðlaun verða veitt í barna, unglinga, karla og kvennaflokki. Boðið verður upp á pylsur, skúffuköku, kaffi og djús á staðnum. Eins og fyrri ár verður skráning keppenda í firmakeppnina á staðnum og því gott að mæta stundvíslega.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga