Salthús gistiheimili
Salthús gistiheimili
Fréttir | 22. janúar 2018 - kl. 12:59
Nýtt gistiheimili á Skagaströnd

Á föstudaginn verður Salthús gistiheimili formlega opnað að Einbúastíg 3 á Skagaströnd. Húsið er nyrst í bænum, uppá Spákonufellshöfðanum. Þaðan er útsýni yfir Húnaflóann til suðurs og til norðurs og austurs er fjallgarðurinn þar sem Spákonufell trónir hæst. Húsið er í eigu Hrafnaness ehf. en Salthús gistiheimili ehf. mun sjá um rekstur gistiheimilisins og er framkvæmdastjóri þess Hrafnhildur Sigurðardóttir.

Salthúsið á Skagaströnd var byggð í kringum 1950 af Hólanesi hf. og er rúmlega 400 fermetrar á tveimur hæðum. Líklega hefur það átt að gegna hlutverki gistiaðstöðu fyrir fiskvinnslufólk, því það var skráð sem verbúð hjá yfirvöldum. Það kom þó aldrei til því síðustu áratugi hefur það verið notað sem salthús eða saltfiskverkun, beitningarhús, vélaverkstæði, trésmíðaverkstæði og síðustu tíu árin sem geymsla. Síðar keypti Skagstrendingur hf. húsið.

Árið 2016 keypti Hrafnanes húsið af Trésmiðju Helga Gunnarssonar ehf. Það ár var hafist handa við að teikna breytingar á húsinu og hafði Þorgils Magnússon byggingartæknifræðingur á Blönduósi veg og vanda að því. Í ársbyrjun 2017 var byggingarstjóri og trésmíðameistari ráðnir frá Tveimur smiðum á Hvammstanga, en aðrir iðnaðarmenn komu frá Blönduósi og Skagaströnd. Í mars 2017 keypti Hólanes ehf., fyrirtæki Skagstrendinga sem stofnað var um byggingu hótels á Skagaströnd, hlutabréf í Hrafnanesi.

Þegar þarna var komið hófst endurbyggingin, en fyrst var þakið rifið og allir innveggir á báðum hæðum. Þá tók sjálf uppbyggingin við og stóð hún linnulaust fram að miðjum desember síðastliðinn. Fyrstu gestirnir hafa þegar dvalið í húsinu, bæði íslenskir og erlendir, en formleg opnun verður föstudaginn 26. janúar klukkan 17-19. Þá mun eigandi hússins Hrafnanes afhenda húsið formlega til Salthúss gistiheimilis til rekstrar.

Allir eru velkomnir á opnunina á föstudaginn.

Heimasíða Salthússins er www.salthus.is og Facebook bíða þess er undir Salthús Guesthouse Skagaströnd.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga