Tilkynningar | 09. febrúar 2018 - kl. 13:34
Grímuball í Félagsheimilinu á Blönduósi
Tilkynning frá Blönduskóla

Grímuball Blönduskóla verður miðvikudaginn 14. febrúar (Öskudaginn) og verður húsið opnað kl. 18:30 en balið sjálft hefst kl. 19:00. Dagskrá líkur kl. 20:15. Aðgangseyrir er 500 kr. fyrir grímuklædda og 1.000 kr. fyrir aðra. Frítt er fyrir yngri en 6 ára.

Börn, foreldrar og aðrir bæjarbúar eru hvattir til að koma grímuklæddir.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga