Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Miðvikudagur, 24. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 16:40 0 0°C
Laxárdalsh. 16:40 0 0°C
Vatnsskarð 16:40 0 0°C
Þverárfjall 16:40 0 0°C
Kjalarnes 16:40 0 0°C
Hafnarfjall 16:40 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Séð út Blöndudal. Ljósm: “lína Friðriksdóttir.
Séð út Blöndudal. Ljósm: “lína Friðriksdóttir.
Pistlar | 20. febrúar 2018 - kl. 09:21
Stökuspjall: Kærleiksgaldri beittu!

Rúna er ekki bara hestamannabók eða Húnvetninga, heldur er hún mikil Íslendingabók. Sigmundur Ernir heldur um penna með þessum snjalla hestamanni. Þetta er bók fyrir sælkera  – á móðurmálið.

Skoðum eina lýsinguna, upphafið að Blönduósferð Júlíusar bónda, afans á Mosfelli. Rúna lýsir:

„Guðrún amma af Ströndum norður sendi alltaf út viðvörun þegar afi ætlaði að aka alla leið í kaupstaðinn. Þá  steig hún föstum sóla út á hlaðvarpann og tæmdi bæjarhlaðið í einni svipan. Fáar æskuminningar eru mér raunar eftirminnilegri, en þá vaggaði sú gamla um eins og gæsamamma og skipaði ungviðinu burt, þvílík hætta væri á ferðum að ekki mætti taka nokkra áhættu á meðan Willysinn yfirgæfi svæðið.

Svo snaraðist kempan aldna upp í jeppann með marautt planið fyrir framan sig og prumpaði jálkinum af stað í öllum þeim rykkjum og hnykkjum sem áttu við verklagið. Og eftir það ók hann eftir miðjum veginum, eins og til eigin öryggis og vék aldrei fyrir þeim sem á móti komu, svo þeir urðu ýmist að stöðva eða bremsa í botn á meðan hans hátign af Mosfelli fór um héraðið, heyrnarlítill og hamingjan uppmáluð."

Bókin Rúna kom út 2017, sögukonan, Rúna frá Mosfelli, flutt heim eftir Þýskalandsdvöl, hjúskap og marga sigra á skeiðvellinum.

Hugum nú að hestavísum:

Á hausti fölnar fegurst rós
flýr öll prýði úr högum.
Nú er fallinn Leiri ljós
ljósum fækkar dögum.

Birna Jónsdóttir, ættmóðir Fagranesmanna á Reykjaströnd, orti vísuna þegar reiðhestur hennar og uppáhaldsgæðingur var felldur.

Páll frá Holti á Ásum kvað:

Hratt fram rýkur hestur sá
harmur víkur ærinn.
Hattur fýkur höfði frá
hárið strýkur blærinn.
Jakob á Skúfi yrkir:
Blakkur undan fákafans
fljótt sem tundur svífur.
Veinar grund við hófför hans
holtin sundur rífur. 

Ljúkum hestastökum með vísu Guðríðar frá Austurhlíð, sem situr allroskin norður á Sauðárkróki og vinnur enn að nýjum myndum með nál sinni og listamannshuga.

Hvekktu hann aldrei. Kembdu´ hann milt.
Kærleiksgaldri beittu.
Sé hann baldinn, blítt og stillt
boðs og valda neyttu.

Einn af öndvegisrithöfundum okkar flytur í Vatnsdalinn vestan frá Melum. Það var 1883. Ingunn á Kornsá fór að skrá minningar í ellinni, góðu heilli. Hún hefur þann formála að hún dugi lítt til að gera bændavísur eins og sumir gátu en rita kann hún. Það sér lesandinn fljótt. Maður Ingunnar, Björn Sigfússon var einn Blöndælanna, dóttursonur Björns sýslumanns í Hvammi og öflugasti baráttumaður fyrir Kvennaskóla Húnvetninga sem byrjaði menningu sína á Undirfelli við umsjón sr. Hjörleifs Einarssonar.

Ingunn skrifar að Eyjólfsstaðahjón „hefðu sýnt mikið þrek og stillingu, er þau urðu fyrir þeirri þungu sorg, að missa Sigurð, einkason sinn, á sviplegan hátt, er hann var á leið til háskólans í Kaupmannahöfn. Var hann hið besta mannval, fríður, gáfaður og gervilegur, hvers manns hugljúfi, er honum kynntist, og augasteinn foreldra sinna. Ekki munu margir hafa heyrt til þeirra æðruorð og létu þau þó stórum á sjá á skömmum tíma. Bróðurson Jónasar, Sigurð Nordal prófessor, ólu þau upp. Bætti hann þeim mikið sonarmissinn, enda voru þeir frændur taldir líkir um margt. Þó mun það sár aldrei að fullu hafa gróið."

Í Föðurtúnum, riti Páls Kolka, er mynd á bls. 272 úr baðstofunni á Eyjólfsstöðum þar sem drengurinn Sigurður Nordal situr við lestur.

Tilvísanir:
Júlíus á Mosfelli: http://bragi.info/hunafloi/hofundur.php?U=j0&ID=16036&ut=1
Hinn afinn, Höskuldur frá Vatnshorni: http://bragi.info/hunafloi/hofundur.php?U=h0&ID=15314&ut=1
Hestavísur: http://bragi.info/hunafloi/visur.php?ID=3&ut=1
Vatnsdælingar fyrir 1880: http://stikill.123.is/blog/2015/07/14/733214/

Ingi Heiðmar Jónsson

Höf. rzg
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Fréttir | 24. apríl 2024 - kl. 11:19
Góð þátttaka var á vinnustofu um gerð loftslagsstefnu sveitarfélaganna í Húnavatnssýslum sem haldin var á Hvammstanga nýverið. Það voru Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem stóðu fyrir vinnustofunni í samstarfi við KPMG. Á vef SSNV kemur fram að áhugaverðar umræður hefðu skapast og ljóst sé að það er bjart yfir fólki þegar vorar, enda sé bjart framundan fyrir svæðið.
Glaðheimar
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 13:50
Nöfn Pálínu Fanneyjar Skúladóttur og Harðar Gunnarsson voru dregin upp úr potti í tengslum við kosningu á fimm tillögum af slagorði fyrir Húnaþing vestra. Þátttakendur í kosningunni gátu skráð netfang sitt og tekið þátt í happdrættinu og í boði var 10 þúsund króna gjafabréf á veitingastað í sveitarfélaginu. Pálína og Hörður völdu gjafabréf á Northwest í Víðigerði. Slagorðið sem varð hlutskarpast er Lifandi samfélag og hefur sveitarstjórn samþykkt tillöguna.
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:49
Í gærkvöldi sóttu vettvangsliðar á Skagaströnd fræðslu um ofbeldi í nánum samböndum, einkenni þess og mögulegar birtingarmyndir. Fræðslan var á vegum Lögreglunnar á Norðurlandi vestra en unnin í nánu samstarfi við félagsþjónustu svæðisins. Fleiri einingar viðbragðsaðila í umdæminu munu sitja sams konar fræðslu á næstu vikum, að því er segir á facebooksíðu lögreglunnar. Fræðslan í kvöld fór fram í Bjarmanesi þar sem eitt sinn var lögreglustöð.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:42
Árlegir vortónleikar Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga eru framundan enda vorið og sumarið á leiðinni í Húnavatnssýslurnar. Fyrstu tónleikarnir fara fram í Blönduóskirkju þriðjudaginn 30. apríl klukkan 20 en þar koma fram söngnemendur úr Húnabyggð. Þriðjudaginn 7. maí klukkan 17 verða tónleikar í Hólaneskirkju og þar koma fram hljóðfæra- og söngnemendur úr Skagabyggð og frá Skagaströnd.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:30
Aðalfundur Stéttarfélagsins Samstöðu 2024 verður haldin mánudaginn 29.apríl klukkan 18:00 í sal Samstöðu, Þverbraut 1 á Blönduósi. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:26
Frá stjórn
Aðalfundur Styrktarsjóðs Húnvetninga verður haldinn að Þverbraut 1 (Samstöðu) klukkan 17:00 fimmtudaginn 2. maí næstkomandi. Venjuleg aðarfundarstörf.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 21:23
Frá Kvenfélagi Svínavatnshrepps
Kvenfélag Svínavatnshrepps hélt upp á 150 ára afmæli sitt 20. apríl sl. Var öllum kvenfélagskonum í Austur Húnavatnssýslu boðið í kaffi í Dalsmynni. Þar var mikil kökuveisla sem einkenndist af því að hafa kaffibrauð sem hugsanlega hefði getað verið á borðum er kvenfélagið var stofnað. Fyrir tíu árum þegar kvenfélagið varð 140 ára héldu konur í félaginu hóf og einnig handverkssýningu í Dalsmynni.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 18:37
Hátíðarhöld í tilefni sumardagsins fyrsta á Hvammstanga í ár verða enn fjölbreyttari en áður. Hátíðin er haldin af Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra í samstarfi við Hestamannafélagið Þyt og hefst með ókeypis sirkussýningu í Þytsheimum klukkan 12:00, fimmtudaginn 25 apríl. Síðan verður haldið upp á sumardaginn fyrsta á hefðbundinn hátt með skrúðgöngu frá Reiðhöllinni Þytsheimum klukkan 14:00.
Bréf Margrétar á Hóli
Bréf Margrétar á Hóli
Pistlar | 20. apríl 2024 - kl. 16:59
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
Stjórnarherrar landanna höfðu í aldanna rás lengstum ekki mikil afskipti af þegnum sínum, létu sér nægja að hirða af fólki hluta af þeim arði sem það framleiddi og krafði svo með nokkuð jöfnu millibili hluta af karlpeningnum til þjónustu í herjum sínum til vígaferla og ránsferða. Auk þess höfðu stjórnvöld mikinn áhuga á að segja fólki á hvað það skyldi trúa. Heilbrigðismál, skólamál og félagsþjónusta komu lítið inn á borð stjórnarherranna en var á vegum einstaklinga og ættmenna, kirkjunnar og, a.m.k. á Íslandi, hreppa.
Bóka- og skjalasafnið á Blönduósi
Bóka- og skjalasafnið á Blönduósi
Pistlar | 20. apríl 2024 - kl. 11:58
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Á miðvikudegi þann 8. maí, boðum við aðalfund Sögufélagsins Húnvetnings, kl. 15, þ.e. á nóni í Bóka- og skjalasafninu Blönduósi. Þar munu þau Svala skjalavörður Runólfsdóttir og Benedikt Blöndal segja frá og sýna okkur árangur starfs þeirra hjóna við að safna upplýsingum um minnismerki í Austur-Húnavatnssýslu síðustu misserin. Einnig mun Hjalti Pálsson sagnfræðingur koma til okkar á fundinn og segja okkur frá upphaflegum tillögum og umræðu sem leiddu til þess stórvirkis sem Byggðasaga Skagfirðinga varð í höndum hans.
Mynd: vedur.is
Mynd: vedur.is
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 21:12
Gular veðurviðvaranir taka gildi á morgun allt frá Breiðafirði, um Vestfirði, allt Norðurland og austur á firði, vegna talsverðrar rigningar og asahláku á morgun og fram á aðfaranótt sunnudags. Á vef Veðurstofunnar segir að vegna ört hækkandi hitastigs megi búast við miklum leysingum, auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum. Mikilvægt sé að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón vegna rigningar og leysingavatns.
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 20:56
Verkalýðsmálaráð Samfylkingarinnar boðar til málstofu um húsnæðis- og kjaramál, laugardaginn 20. apríl klukkan 09:00 í húsnæði stéttarfélagsins Samstöðu að Þverbraut 1 á Blönduósi. Frummælendur verða Þórarinn Sverrisson, formaður Öldunnar, stéttarfélags í Skagafirði, Ásgerður Pálsdóttir, fyrrverandi formaður Samstöðu og núverandi formaður Félags eldri borgara á Blönduósi og Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfjarða.
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 12:07
Sunnudaginn 28. apríl verða haldnir tónleikar í Blönduóskirkju þar sem kirkjukórinn mun syngja nokkur hugljúf vorlög undir stjórn Eyþórs Franzsonar Wechner organista. Jafnframt mun Eyþór sýna snilli sína og leyfa okkur að heyra hvað orgelið hefur upp á að bjóða.
Helgi Haukur Helgason, framkvæmdastjóri Bríetar og Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra. Mynd. hunathing.is
Helgi Haukur Helgason, framkvæmdastjóri Bríetar og Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra. Mynd. hunathing.is
Fréttir | 18. apríl 2024 - kl. 20:37
Húnaþing vestra og Leigufélagið Bríet hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu leiguíbúða í Húnaþingi vestra. Í yfirlýsingunni lýsa aðilar yfir vilja til samstarfs um uppbyggingu leiguíbúða í sveitarfélaginu auk þess sem Húnaþing vestra leggur til íbúðir í sinni eigu í gegnum svokölluð yfirtökuverkefni. Viljayfirlýsing þessi kemur til viðbótar samkomulagi sem undirritað var á dögunum milli innviðaráðuneytis, Húnaþings vestra og HMS um uppbyggingu allt að 50 íbúða til sölu og leigu á næstu fimm árum.
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið