Fréttir | 22. febrúar 2018 - kl. 16:20
Stoppleikhópurinn sýnir leikrit um Martein Lúther í Blönduóskirkju
Tilkynning frá sóknarprestum og sóknarnefndum

Stoppleikhópurinn sýnir leikrit um Martein Lúther í Blönduóskirkju laugardaginn 24. febrúar nk. kl. 11:00. Handrit og leikgerð er í umsjá Valgeirs Skagfjörð og Stoppleikhópsins.

Leikritið er 70 mínútur og er ætlað fullorðnum og eldri börnum. Allir velkomnir en fermingarbörn og foreldrar þeirra eru sérstaklega velkomin.

Aðgangur er ókeypis þar sem sýningin er í boði héraðssjóðs og kirknanna í Austur-Húnavatnssýslu.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga