Kristján varaformaður og Atli starfsmaður Storms. Ljósm: FB/Húnar.
Kristján varaformaður og Atli starfsmaður Storms. Ljósm: FB/Húnar.
Fréttir | 20. mars 2018 - kl. 09:23
Tvö ný Polaris fjórhjól til Húna

Björgunarsveitin Húnar fékk nýverið afhent tvö ný Polaris X2 Nordic fjórhjól frá Stormi. Þau leysa af eldri Suzuki hjól sem hafa verið seld. Hjólin verða meðal annars á beltum þegar tíðarfar og færð bíður upp á það. Þessa dagana er verið að gera hjólin útkallsklár, að því er segir á Facebook síðu Húna, þaðan sem meðfylgjandi mynd er tekin.

Á myndinni er Kristján varaformaður Húna að taka formlega við hjólunum frá Atla starfsmanni Storms.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga