Frá undirskrift samninga í gær. Ljósm: stjornarradid.is
Frá undirskrift samninga í gær. Ljósm: stjornarradid.is
Fréttir | 23. mars 2018 - kl. 15:44
Húnaþing vestra fær 36 milljónir úr fjarskiptasjóði vegna ljósleiðaravæðingar

Fulltrúar fjarskiptasjóðs og sveitarfélaga skrifuðu í gær undir 24 samninga um styrki fjarskiptasjóðs vegna ljósleiðaravæðingar sveitarfélaga í tengslum við landsátakið Ísland ljóstengt. Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, staðfesti samningana með undirskrift sinni og fór athöfnin fram í ráðuneytinu. Sveitarfélögin 24 fá samtals 450 milljónir króna í styrki, á bilinu 2 til 74 milljónir króna hvert. Þar á meðal er Húnaþing vestra sem fær samtals 36,3 milljónir.

Styrkurinn til Húnaþings vestra er tvíþættur, annars vegar byggðastyrkur að fjárhæð 11,7 milljónir króna og hins vegar samkeppnisstyrkur að fjárhæð 24,6 milljónir.

Auk styrkja frá fjarskiptasjóði þá leggja íbúar og sveitarfélög að lágmarki 350.000 kr. af mörkum vegna hverrar tengingar en í mörgum tilfellum er þörf á töluvert hærra framlagi heimamanna. Í þeim tilfellum að sveitarfélag ætlar ekki að eiga og reka eigið kerfi greiða fjarskiptafyrirtæki fyrir það að eignast slík kerfi eða reka fyrir hönd sveitarfélagsins.

Nánari upplýsingar má finna á vef stjórnarráðsins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga