Fréttir | 16. apríl 2018 - kl. 12:47
Sektir vegna umferðarlagabrota hækka

Lögreglan á Norðurlandi vestra vekur athygli á nýrri reglugerð um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim, sem tekur gildi 1. maí næstkomandi. Í henni felast verulegar hækkanir á sektum og eru nokkur dæmi nefnd. Ef ekið er á 115 km/klst er sektin kr. 80.000. Ef ekið er á 125 km/klst er sektin kr. 115.000 og ef ekið á 135 km/klst er sektin kr.150.000.

Ef farsími er notaður án handfrjáls búnaðar er sektin kr. 40.000. Ef ekið er án þess að endurnýja ökuskýrteini er sektin kr. 20.000. Ef ökuskírteini er ekki meðferðis í ökuferð er sektin kr. 10.000. Ef öryggisbelti er ekki notað er sektin kr. 20.000.

„Það er eitt sem er alveg öruggt og það er að það er skynsamlegra að setja peningana í eitthvað annað en að brjóta umferðarlögin. Komum heil heim,“ segir á Facebook síðu lögreglunnar á Norðurlandi vestra.


Reglugerðina má sjá hér https://www.samgongustofa.is/…/log-og-reg…/B_nr_288_2018.pdf

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga