Efragil í Giljá. Ljósm: Róbert Daníel Jónsson.
Efragil í Giljá. Ljósm: Róbert Daníel Jónsson.
Pistlar | 18. apríl 2018 - kl. 09:05
Stökuspjall: Sparsöm oft var þessi þjóð!
Eftir Inga Heiðmar Jónsson

Hlýjar sumarkveðjur á þetta stökuspjall að færa þér, lesari góður, og nokkrar vísur gamlar og nýjar.

Félagsmál: Í byrjun maí verður haldinn aðalfundur Sögufélagsins á Blönduósi í B&S/Eyvindarstofu. Fundurinn verður sunnudaginn 6. maí kl. 14 og verður sagnfræðingurinn Kristján Sveinsson fyrirlesari þar og segir fundargestum frá vitum og höfnum í Húnaþingi.

Hefjum spjallið með þessari sumarvísu Helga prests í Hveragerði:

Hlýddu á vorsins vökuljóð
vakna þú sem sefur
meðan sólin morgunrjóð
mjúkan koss þér gefur.

Aðra vísu og enn frægari á Hveragerðisklerkur í safni sínu:

Hér er margur sæll í sinni
sýslurígur burtu fer.
Þjórsá verður minni og minni
þess meira sem að drukkið er.

Vísa sú tengist útgerðarsögu Sunnlendinga og vel sagðan formála fyrir versinu má finna hjá Birni Pálssyni sagnfræðingi í Sögu Þorlákshafnar, sjá tilvísun. En staðurinn Þorlákshöfn ber nú nafn með rentu með vaxandi og vel staðsetta höfn.

Norður á Vatnsnesi er önnur höfn en þar heitir þorpið Hvammstangi og margir hagyrðingar hafa gengið þar um götur. Einn þeirra, Eðvald Halldórsson bóndi á Stöpum orti:

Bóndi ræktar, bóndi skapar
bóndi eykur þjóðarhag.
Bóndi græðir, bóndi tapar
bóndi vinnur nótt og dag.

Bróður sínum, Gústaf á Hvammstanga, sendir hann hlýja kveðju:

Eftir hálfrar aldar slag
ástarkveðju sendi.
Stakan er mitt litla lag
lagt í bróðurhendi.

Jón Árnason frá Hofi, bókavörður og umsjónarmaður með skólapiltum við Lærða skólann sendi margt bréfið og fékk mörg og þjóðin stundum sögur eins og sjá má af þykkum þjóðsagnabindunum. Þeir eru sveitungar Jón og Kristján sagnfræðingur sem nefndur var í upphafi spjallsins þó hálf önnur öld skilji þá að í tíma. Hér að neðan er vísað til hugvekju sem Jón sendi löndum sínum þegar þjóðsagnasöfnun hans var tekin að mótast. Gott orð hugvekja, má ekki fá því góðan stað á ný?

Víkjum nú að samtímamanni og skólabróður ýmissa Húnvetninga frá árunum í MA, kom norðan úr Mývatnssveit og starfaði síðar sem heimilislæknir á Akureyri. Hjálmar heitir hann og sýnir ótrúlegt lag og frábæra snilld við að raða orðum í vers og vísur. Um skólabróður sinn, Ágúst ferðabónda á Geitaskarði, orti hann:

Á Geitaskarði Gústi býr
glaður kysi ég hann á þing
hefur á fóðrum hross og kýr
hænur, kött og útlending.

Hjálmar freistaði þess að semja öfugmælavísu svo sem forverar hans tíðkuðu:

Í myndastyttum er mikið blóð
máfurinn syngur fögur ljóð
sparsöm oft var þessi þjóð
þessi vísa er skratti góð.

Vísað er til:
Þjórsá verður minni: http://bragi.info/hunafloi/visur.php?VID=26714
Helgi Sveinsson prestur í Hveragerði: http://listvinir.is/sera-helgi-sveinsson/
Ný síða um Jón Árnason bókavörð: http://www.jonarnason.is/
Við skulum tátla hrosshárið: http://stikill.123.is/blog/2016/08/16/753120/
Hugvekja J.Árnasonar 1861: http://www.jonarnason.is/textasafn/hugvekja-1861/
Eðvald Halldórsson: http://bragi.info/hunafloi/hofundur.php?ID=15895
Fischervísa Freysteinssonar: http://bragi.info/hunafloi/visur.php?VID=30665 

Ingi Heiðmar Jónsson

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga