Tilkynningar | 23. apríl 2018 - kl. 09:11
Aðalfundur Krabbameinsfélag A-Hún.

Aðalfundur Krabbameinsfélag Austur-Húnavatnssýslu verður haldinn 2. maí næstkomandi klukkan 18:00 á Ömmukaffi á Blönduósi. Venjuleg aðalfundarstörf, önnur mál og veitingar eru í boði á fundinum. Félagsmenn mætið og nýir félagar velkomnir á fundinn.

Munið minningarkort Krabbameinsfélags A-Hún. í Lyfju á Blönduósi og á síðu félagsins á www.krabb.is.   

Stjórnin.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga