Stóri fyrirtækjadagurinn á Húnavöku 2016
Fréttir | 24. apríl 2018 - kl. 18:39
Fundur verður haldinn fimmtudagskvöldið 26. apríl n.k. kl. 19:30 í norðursal íþróttahússins á Blönduósi. Umræðuefni fundarins er: Stóri fyrirtækjadagurinn sem haldinn hefur verið á Húnavöku síðustu ár. Ákveða á hvort halda eigi þessum degi áfram eða ekki. Einnig væri gott að fá hugmyndir að breytingum.
Hvetjum alla forsvarsmenn fyrirtækja sem hafa komið að þessum degi til að mæta. Einnig eru ný fyrirtæki, sem hafa áhuga á að taka þátt, velkomin.