Fréttir | 25. apríl 2018 - kl. 16:40
Prjónagraffarar ætla að hittast í Kvennaskólanum hjá henni Jóhönnu Erlu kl. 17-19 á fimmtudaginn. Á síðasta fundi töldu viðstaddir 69 stauraskraut. Nauðsynlegt er að endurnýja það sem var á brúnni, en það skraut “lifir” aldrei nema eitt sumar. Vonandi mæta margir, það styttist í júníbyrjun.