Fréttir | Tilkynningar | 27. maí 2018 - kl. 21:04
Golfkennsla
Frá stjórn GÓS

Golfkennarinn John Garner kemur aftur á Blönduós í sumar og verður með kennslu fyrir börn frá 10 ára aldri. Fyrsti dagur í kennslu er sunnudagurinn 3. júní. Í framhaldi heimsækir hann okkur á þriggja vikna fresti. Æfingatímar með leiðbeinanda verða tvisvar í viku. Sumarnámskeið fyrir börn og unglinga kostar 7.500 krónur. Ekki þarf að greiða fyrir fyrsta tímann. Þá geta allir sem vilja komið og prófað. Við lánum kylfur.

Einnig verður hann með kennslu fyrir fullorðna nýliða, einkatíma, paratíma og hóptíma. Tilvalið fyrir nokkra nýliða að taka sig saman og prófa þessa frábæru íþrótt.

Einkatímar – 8.000 kr. Innifalið í gjaldinu er 30 mínútna kennsla ásamt myndbandsgreiningu og leiðsögn.

Paratímar – 6.000 kr. á mann. Innifalið í gjaldinu er kennsla í 60 mínútur.

Hóptímar (6 - 8 í hóp) – 5.000 kr. á mann. Innifalið í gjaldinu er kennsla í 90 mínútur.

Frekari tímasetningar verða auglýstar síðar þegar skráningu er lokið.

Vinsamlegast hafið samband við Jóhönnu á netfangið jgjon@mi.is eða í síma 864 4846 fyrir skráningu og frekari upplýsingar. Skráningu lýkur mánudaginn 28. maí.

Einnig verður boðið upp á golfleikjanámskeið fyrir 6 – 10 ára börn. Leiðbeinandi verður Jóhanna G. Jónasdóttir. Frekari upplýsingar verða auglýstar síðar.

Stjórn GÓS

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga