Fréttir | 23. maí 2018 - kl. 13:24
Körfuboltanámskeið á Blönduósi

Helgi Freyr Margeirsson nýráðinn aðstoðarþjálfari Tindastóls í körfubolta ætlar að halda körfuboltanámskeið á Blönduósi laugardaginn 26. maí næstkomandi fyrir 12-16 ára krakka frá klukkan 11-14.  Námskeiðið er sérstaklega miðað að krökkum sem búa á svæðinu frá Skagaströnd að Hvammstanga.

Ef námskeiðið gengur vel og vart verður við körfuboltaáhuga á svæðinu hefur Helgi Freyr hug á því að stofna Körfuboltaskóla Norðurlands vestra og ná þannig betur til krakkanna á þessu svæði á breiðara aldursbili með reglulegum æfingum. Þá er hugsunin sú að æfingarnar verði til skiptis í íþróttahúsum Hvammstanga, Blönduós og Skagaströnd til að dreifa ferðakostnaði iðkenda.

„Þessi hugmynd að reyna að auka áhugann á körfuboltanum á þessu svæði hefur lengi blundað í mér. Ég tel að þetta sé besta hópíþróttin fyrir lítil bæjarfélög þar sem fáa þarf til að geta sett saman lið, og góð lið eins og árangur kvennaflokka á Hvammstanga í gegnum tíðina hafa t.d. sannað. Uppgangur körfunnar á Sauðárkróki í gegnum meistaraflokksliðs Tindastóls síðastliðin ár hefur sýnt mér hvað það getur gefið samfélaginu ótrúlega mikið að hafa eitthvað jákvætt sameiningartákn til að fylkja sér á bak við, svo ekki sé talað um jákvæðar fyrirmyndir fyrir unga fólkið okkar,“ segir Helgi Freyr í tilkynningu.  

Langtímamarkmiðið með Körfuboltaskóla Norðurlands vestra, ef hann kemst á laggirnar, er að tengja krakkana betur saman félagslega milli bæjarfélaga innan svæðisins og vekja hjá þeim áhuga á körfubolta sem getur mögulega skilað þeim í körfuboltaakademíuna í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og þannig halda krökkunum okkar á þessu svæði lengur, svæðinu öllu til hagsbóta.

„Ég lít svo á að lið meistaraflokks Tindastóls í körfu er lið Norðurlands vestra (eins og er) og í framtíðinni vil ég sjá krakka af þessu svæði koma í það lið í meira mæli,“ segir Helgi Freyr. 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga