Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 25. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 05:04 0 0°C
Laxárdalsh. 05:04 0 0°C
Vatnsskarð 05:04 0 0°C
Þverárfjall 05:04 0 0°C
Kjalarnes 05:04 0 0°C
Hafnarfjall 05:04 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Pistlar | 25. maí 2018 - kl. 09:56
Býrðu á Blönduósi? Afhverju?
Eftir Arnrúnu Báru Finnsdóttur

Snemma á þessu ári hitti ég fólk sem að ég hafði ekki séð áður. Við áttum kurteisislegt spjall og ekki leið á löngu fyrr en að ég var spurð að því hvar ég byggi. Ég sagðist eiga heima á Blönduósi og brosti. Undrunarsvipurinn sem kom á manneskjuna sem ætlaði vart að trúa sínum eigin eyrum. Hún sagði tilbaka "Býrðu á BLÖNDUÓSI? AFHVERJU?" Mér fannst þetta mjög fyndið því þetta var jú "borgarbarn í húð og hár”. Ég svaraði í einlægni að mér fyndist frábært að búa á Blönduósi. Í nálægð við náttúruna, ekkert ys og þys né vesen, ég hefði allt sem ég þyrfti og vel það. Auk þess þá ég vildi ala börnin mín upp út á landi en ekki í höfuðborginni. Þá kom annar skrítinn svipur á manneskjuna og hún spurði íhugul "En er bíó þar?” Ég skellihló inn í mér.

Þó svo að það sé ekki bíó á Blönduósi þá er það frábær staður til að búa á. Mér finnst dásamlegt að þekkja flesta í bænum og heilsa þeim út á götu. Ég vil ekki týnast í maurahrúgunni á Höfuðborgarsvæðinu. Ég vil vera hlekkur í samfélaginu. Í minni samfélögum út á landi skiptir hver og einn máli. Við þurfum öll að vinna saman að sameiginlegum hagsmunum og markmiðum og stuðla að því að bæjarfélagið okkar vaxi og dafni. Það er hlutverk okkar að efla Blönduósbæ þannig að hann sé aðlaðandi staður til að búa á og að uppbyggingu fari fram á öllum sviðum samfélagsins.

Að vera á lista í sveitarstjórnarkosningunum er stórt skref út fyrir þægindarammann minn. En skref sem ég var viljug til að taka til þess að taka þátt í að standa vörð um hagsmuni okkar og eflingu samfélagsins sem ég hef valið mér að búa í. Ég er nýbökuð móðir og var að klára fæðingarorlofið. Með móðurhlutverkinu sé ég hlutina í öðru ljósi og þarfnast annarra hluta en ég gerði áður. Það er margt sem að ég hef rekið mig á seinasta árið sem má betur fara í bæjarfélaginu okkar og mig langar að koma þeim hlutum á framfæri og betrumbæta. Ásamt því er ég ötull talsmaður heilbrigðs lífstíls og vill leggja mig fram við að efla lýðheilsu samfélagsins. Einnig langar mig til að ásýnd Blönduóssbæjar sé falleg og snyrtileg og að glæsilega umhverfinu okkar sé vel við haldið. Ég vil stuðla að eflingu leik- og grunnskólans og að börnin okkar fái öll þau tækifæri sem þau hafa áhuga á. Síðast en ekki síst þá vill ég auka lóðaframboð eða finna aðra góða lausn á húsnæðisvandanum sem hér stafar og auka atvinnu.

Við hjónin vorum 21 árs þegar að við keyptum okkar fyrstu fasteign og hún var á Blönduósi. Eftir kaupin þá rigndu yfir okkur spurningarnar „Afhverju á Blönduósi?” Svarið var einfalt. Hér líður okkur vel. Fjölskyldur og ættingjar okkar beggja eru á svæðinu og við viljum vera út á landi. Það besta við fasteignakaupin fyrir utan hið augljósa var hversu glaðir bæjarbúar voru með það að ungt par skyldi vilja setjast að í bænum. Það var dásamlegt að flytja á Blönduós því að það tóku allir svo vel á móti okkur og voru ánægðir með þetta framtak okkar. Þetta staðfesti enn betur fyrir mér að ég var á réttum stað og ég hef oft talað um þetta við fólk sem flytur í bæinn og það er alltaf sammála mér. Á Blönduósi er vel tekið á móti fólki og gott að vera. Ég er stolt af því að vera partur af þessu samfélagi og fá tækifæri að taka þátt í að efla það enn meira. Ég tel L-listann vera samansettan af frábæru fólki undir leiðtoga sem er drífandi og kraftmikill. Listinn hefur gert flotta hluti á kjörtímabilinu og okkur langar að halda áfram og gera enn betur. Ég er þakklát og hreykin af því að vera hluti af þessum flotta hóp og hlakka til að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér.

Kæru kjósendur, ég vona að þið kynnið ykkur málefni listanna beggja og nýtið kosningaréttinn ykkar. Undanfarnar vikur hafa komið mér skemmtilega á óvart og mér hefur fundist mjög gaman að taka þátt í kosningabaráttunni. Mig langar að þakka ykkur fyrir stuðninginn og við skulum vinna saman að frekari uppbyggingu Blönduósbæjar. Setjið X við L næstkomandi laugardag.

Arnrún Bára
5. sæti L-listans í Blönduósbæ

Höf. rzg
Fréttir | 25. apríl 2024 - kl. 00:30
Hljómsveitin Löður ásamt listamanninum Balduuuuur.
Ungmennafélagið Hvöt og Hljómsveitin Löður ásamt listamanninnum Balduuuuur hafa gefið út stuðningsmannalagið ‚Áfram Hvöt‘. Lag og texti eru eftir Einar Örn Jónsson sem vart þarf að kynna fyrir íbúum Húnabyggðar. Þá syngur Baldur Einarsson, sonur Einars Arnar, lagið. Útsetning lagsins var í höndum þeirra beggja.
Glaðheimar
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Frá vinnustofunni. Mynd: ssnv.is
Fréttir | 24. apríl 2024 - kl. 11:19
Góð þátttaka var á vinnustofu um gerð loftslagsstefnu sveitarfélaganna í Húnavatnssýslum sem haldin var á Hvammstanga nýverið. Það voru Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem stóðu fyrir vinnustofunni í samstarfi við KPMG. Á vef SSNV kemur fram að áhugaverðar umræður hefðu skapast og ljóst sé að það er bjart yfir fólki þegar vorar, enda sé bjart framundan fyrir svæðið.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 13:50
Nöfn Pálínu Fanneyjar Skúladóttur og Harðar Gunnarsson voru dregin upp úr potti í tengslum við kosningu á fimm tillögum af slagorði fyrir Húnaþing vestra. Þátttakendur í kosningunni gátu skráð netfang sitt og tekið þátt í happdrættinu og í boði var 10 þúsund króna gjafabréf á veitingastað í sveitarfélaginu. Pálína og Hörður völdu gjafabréf á Northwest í Víðigerði. Slagorðið sem varð hlutskarpast er Lifandi samfélag og hefur sveitarstjórn samþykkt tillöguna.
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Frá Bjarmanesi á Skagaströnd. Mynd: FB/Lögreglan á Norðurlandi vestra
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:49
Í gærkvöldi sóttu vettvangsliðar á Skagaströnd fræðslu um ofbeldi í nánum samböndum, einkenni þess og mögulegar birtingarmyndir. Fræðslan var á vegum Lögreglunnar á Norðurlandi vestra en unnin í nánu samstarfi við félagsþjónustu svæðisins. Fleiri einingar viðbragðsaðila í umdæminu munu sitja sams konar fræðslu á næstu vikum, að því er segir á facebooksíðu lögreglunnar. Fræðslan í kvöld fór fram í Bjarmanesi þar sem eitt sinn var lögreglustöð.
Fréttir | 23. apríl 2024 - kl. 10:42
Árlegir vortónleikar Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga eru framundan enda vorið og sumarið á leiðinni í Húnavatnssýslurnar. Fyrstu tónleikarnir fara fram í Blönduóskirkju þriðjudaginn 30. apríl klukkan 20 en þar koma fram söngnemendur úr Húnabyggð. Þriðjudaginn 7. maí klukkan 17 verða tónleikar í Hólaneskirkju og þar koma fram hljóðfæra- og söngnemendur úr Skagabyggð og frá Skagaströnd.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:30
Aðalfundur Stéttarfélagsins Samstöðu 2024 verður haldin mánudaginn 29.apríl klukkan 18:00 í sal Samstöðu, Þverbraut 1 á Blönduósi. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Tilkynningar | 23. apríl 2024 - kl. 10:26
Frá stjórn
Aðalfundur Styrktarsjóðs Húnvetninga verður haldinn að Þverbraut 1 (Samstöðu) klukkan 17:00 fimmtudaginn 2. maí næstkomandi. Venjuleg aðarfundarstörf.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 21:23
Frá Kvenfélagi Svínavatnshrepps
Kvenfélag Svínavatnshrepps hélt upp á 150 ára afmæli sitt 20. apríl sl. Var öllum kvenfélagskonum í Austur Húnavatnssýslu boðið í kaffi í Dalsmynni. Þar var mikil kökuveisla sem einkenndist af því að hafa kaffibrauð sem hugsanlega hefði getað verið á borðum er kvenfélagið var stofnað. Fyrir tíu árum þegar kvenfélagið varð 140 ára héldu konur í félaginu hóf og einnig handverkssýningu í Dalsmynni.
Fréttir | 21. apríl 2024 - kl. 18:37
Hátíðarhöld í tilefni sumardagsins fyrsta á Hvammstanga í ár verða enn fjölbreyttari en áður. Hátíðin er haldin af Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra í samstarfi við Hestamannafélagið Þyt og hefst með ókeypis sirkussýningu í Þytsheimum klukkan 12:00, fimmtudaginn 25 apríl. Síðan verður haldið upp á sumardaginn fyrsta á hefðbundinn hátt með skrúðgöngu frá Reiðhöllinni Þytsheimum klukkan 14:00.
Bréf Margrétar á Hóli
Bréf Margrétar á Hóli
Pistlar | 20. apríl 2024 - kl. 16:59
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
Stjórnarherrar landanna höfðu í aldanna rás lengstum ekki mikil afskipti af þegnum sínum, létu sér nægja að hirða af fólki hluta af þeim arði sem það framleiddi og krafði svo með nokkuð jöfnu millibili hluta af karlpeningnum til þjónustu í herjum sínum til vígaferla og ránsferða. Auk þess höfðu stjórnvöld mikinn áhuga á að segja fólki á hvað það skyldi trúa. Heilbrigðismál, skólamál og félagsþjónusta komu lítið inn á borð stjórnarherranna en var á vegum einstaklinga og ættmenna, kirkjunnar og, a.m.k. á Íslandi, hreppa.
Bóka- og skjalasafnið á Blönduósi
Bóka- og skjalasafnið á Blönduósi
Pistlar | 20. apríl 2024 - kl. 11:58
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Á miðvikudegi þann 8. maí, boðum við aðalfund Sögufélagsins Húnvetnings, kl. 15, þ.e. á nóni í Bóka- og skjalasafninu Blönduósi. Þar munu þau Svala skjalavörður Runólfsdóttir og Benedikt Blöndal segja frá og sýna okkur árangur starfs þeirra hjóna við að safna upplýsingum um minnismerki í Austur-Húnavatnssýslu síðustu misserin. Einnig mun Hjalti Pálsson sagnfræðingur koma til okkar á fundinn og segja okkur frá upphaflegum tillögum og umræðu sem leiddu til þess stórvirkis sem Byggðasaga Skagfirðinga varð í höndum hans.
Mynd: vedur.is
Mynd: vedur.is
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 21:12
Gular veðurviðvaranir taka gildi á morgun allt frá Breiðafirði, um Vestfirði, allt Norðurland og austur á firði, vegna talsverðrar rigningar og asahláku á morgun og fram á aðfaranótt sunnudags. Á vef Veðurstofunnar segir að vegna ört hækkandi hitastigs megi búast við miklum leysingum, auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum. Mikilvægt sé að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón vegna rigningar og leysingavatns.
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 20:56
Verkalýðsmálaráð Samfylkingarinnar boðar til málstofu um húsnæðis- og kjaramál, laugardaginn 20. apríl klukkan 09:00 í húsnæði stéttarfélagsins Samstöðu að Þverbraut 1 á Blönduósi. Frummælendur verða Þórarinn Sverrisson, formaður Öldunnar, stéttarfélags í Skagafirði, Ásgerður Pálsdóttir, fyrrverandi formaður Samstöðu og núverandi formaður Félags eldri borgara á Blönduósi og Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfjarða.
Fréttir | 19. apríl 2024 - kl. 12:07
Sunnudaginn 28. apríl verða haldnir tónleikar í Blönduóskirkju þar sem kirkjukórinn mun syngja nokkur hugljúf vorlög undir stjórn Eyþórs Franzsonar Wechner organista. Jafnframt mun Eyþór sýna snilli sína og leyfa okkur að heyra hvað orgelið hefur upp á að bjóða.
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið