Tilkynningar | 12. júní 2018 - kl. 13:15
Hin árlega kvennareið
Tilkynning frá nefndinni

Hin árlega kvennareið í Austur-Húnavatnssýslu verður farin laugardaginn 23. júní. Í ár verður riðið meðfram Vatnsdalsánni og verður lagt af stað klukkan 14:00 frá brúnni við afleggjarann að Forsæludal/Sunnuhlíð inni í Vatnsdal (við hundakofann). Endað verður við Undirfellsrétt þar sem verður grillað og haft gaman. Þemað í ár verður indíána.

Þáttökugjald er kr. 3.000.

Vonumst til þess að sem flestar konur sjái sér fært að mæta og hafa gaman saman.

Skráning er hjá Lisu í síma 7783837 eða lisainga88@gmail.com fyrir miðvikudaginn 20. júní klukkan 20:00.

Nefndin

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga