Skjáskot af Morgunblaðinu í dag.
Skjáskot af Morgunblaðinu í dag.
Fréttir | 14. júní 2018 - kl. 09:26
Fornleifagreftri á Þingeyrum framhaldið í sumar

Í Morgunblaðinu í dag er fjallað um fornleifagröftinn á Þingeyrum. Fræðilegar rannsóknir hófust á Þingeyraklaustri árið 2016 og hafa þær farið fram undir heitinu Þingeyraverkefnið. Verkefnið er þríþætt og miðar að uppgreftri minja tengdum klaustrinu, greiningu gróðurfars á miðöldum í næsta nágrenni og loks athugunum á handritamenningu miðalda. Í blaðinu kemur fram að nú sé 10 manna hópur að störfum, að grafa sig niður í gegnum jarðlög frá 17. og 18. öld og þar hafi ýmislegt forvitnilegt komið í ljós.

Dr. Steinunn Kristjánsdóttir, prófessor í fornleifafræði við Háskóla Íslands hóf leit að rústum Þingeyraklausturs árið 2014 en þá var leitað á eyðijörðinni Trumbsvölum sem er í landi Þingeyra. Munnmæli sögðu að klaustrið hefði staðið þar. Fundust þá rústir íveruhúsa sem reist voru fyrir og eftir gosið í Heklu árið 1104. Árið 2015 var gerð forkönnun heima á Þingeyrum en þá fannst loks rúst klausturkirkjunnar skammt norðan við núverandi bæjarstæði Þingeyra og bentu jarðsjámælingar einnig til þess að miklar minjar væru í jörðu norðan af henni. Um leið var ljóst að klausturstæðið væri fundið. Rannsóknir héldu svo áfram árin 2016 og 2017 en þá fundust enn fleiri mannvistaleifar bæði frá klausturtíma og einnig eldri minjar.

Í apríl síðastliðnum fékk Háskóli Íslands fimm milljón króna styrk úr fornminjasjóði vegna fornleifarannsókna á Þingeyraklaustri. Þeir peningar eru notaði í uppgröftinn í sumar en áhersla er lögð á að grafa kór klausturkirkjunnar og í öskuhaug frá klausturtíma. Í Morgunblaðinu í dag segir Steinunn að þar sem verkefnið sé mjög umfangsmikið dugi þessir fjármunir hvergi nærri og sé verið að leita fjármagns víða. Hún segir að ein helsta ástæða þess að ákveðið hafi verið að ráðast í uppgröft á kór klausturkirkjunnar sé sú að þar séu mestar líkur á að komast í tæri við svartadauða, hina illræmdu plágu sem felldi drjúgan hluta landsmanna í upphafi 15. aldar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga