Tilkynningar | 20. júní 2018 - kl. 08:56
Golfkennsla
Frá stjórn GÓS

Þá er komið að annarri heimsókn John Garners sunnudaginn 24. júní. Þeir sem vilja panta tíma hafi samband við Jóhönnu á netfangið jgjon@mi.is eða í síma 864 4846. Skráningu lýkur föstudaginn 21. júní klukkan 20.00.

Einkatímar – 8.000 kr. Innifalið í gjaldinu er 30 mínútna kennsla ásamt myndbandsgreiningu og leiðsögn.

Paratímar – 6.000 kr. á mann. Innifalið í gjaldinu er kennsla í 60 mínútur.

Hóptímar (6 - 8 í hóp) – 5.000 kr. á mann. Innifalið í gjaldinu er kennsla í 90 mínútur.

Krakkar 10 ára og eldri sem eru skráðir í kennslu mæta kl. 13.00 – 15.00.

Golfleikjanámskeið fyrir 6 – 10 ára börn verður auglýst mjög fljótlega. Leiðbeinandi verður Jóhanna G. Jónasdóttir. 

Stjórn GÓS

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga