Stoltur veiðimaður með lax úr Miðfjarðará. Ljósm: FB/Miðfjarðará Lodge Iceland
Stoltur veiðimaður með lax úr Miðfjarðará. Ljósm: FB/Miðfjarðará Lodge Iceland
Fréttir | 20. júní 2018 - kl. 09:16
Opnunarhollið í Miðfjarðará með 69 laxa

Miðfjarðará opnaði af miklum krafti í síðustu viku og endaði opnunarhollið með 69 laxa eftir þriggja og hálfs daga veiði á sex stangir. Aðstæður til veiða voru erfiðar, kalt og vindasamt. Áin opnaði formlega föstudaginn 15. júní og komu 25 laxar á land þann daginn og voru þeir allir um 80-90 sentímetra langir. Í fyrra veiddust 3.765 laxar í Miðfjarðará og endaði áin í öðru sæti yfir aflahæstu ár landsins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga