Verk fyrrverandi gestalistamanna í Nesi. Ljósm: visir.is
Verk fyrrverandi gestalistamanna í Nesi. Ljósm: visir.is
Fréttir | 12. júlí 2018 - kl. 09:49
Sýning á Akureyri í tilefni tíu ára afmælis Ness

Um helgina verður haldin sýning í Deiglunni á Akureyri í tilefni tíu ára afmælis Ness listamiðstöðvar á Skagaströnd. Til að fagna tímamótunum hafa 77 fyrrverandi gestalistamenn gefið þangað verk. Í Fréttablaðinu í dag er rætt við Signýju Richter sem býr á Skagaströnd en hún hefur verið í stjórn Ness frá upphafi. Hún segir að Hrafnhildur Sigurðardóttir myndlistakona hafi komið miðstöðinni á laggirnar með stuðningi sveitarfélagsins og Byggðastofnunar.

„Hingað koma oft tíu til fimmtán listamenn í hverjum mánuði og dvelja fjórar vikur. Þeir lífga upp á bæinn, sérstaklega þegar þeir eru með verkefni í skólanum sem krakkarnir taka þátt í. Í lok mánaðar geta allir skoðað hvað þeir hafa verið að gera, það er misjafnlega sýnilegt.

Ein frönsk stúlka byrjaði að mála stór olíuverk, 2x2, ef ekki stærri þegar hún var hér, en hafði áður einbeitt sér að litlum, fíngerðum myndum. Þetta var 2009 og hún hefur verið að mála svona stór verk síðan. Ísraeli sem var vanur þvílíkri mannmergð labbaði hér upp á fjall og lá einn á bakinu í marga klukkutíma í rigningu. Fannst það yndislegt. Oft opnar þetta langt að komna listafólk líka augu okkar heimafólks fyrir fegurðinni hér í kring,“ segir Signý í samtali við Fréttablaðið í dag.

Sýningin er opin milli klukkan 14 og 17 í Deiglunni, Listagili.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga